„Má segja að hann hafi þverbrotið allar reglur“

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Karítas

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar þurfti að víkja frá öryggisverklagi til að koma skipverjum á Jökli til bjargar austur af landi í gær. Allir í áhöfninni voru sammála um að halda til bjargar enda var að sögn Georgs Lárussonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, í raun ekkert annað í stöðunni.

Þetta kom fram á blaðamannafundi í ráðherrabústaðnum í morgun vegna sjóslyssins þar sem þrír skipverjar létust en fjórtán var bjargað.

Georg var spurður hvort Gæslan hefði þurft að víkja frá öryggisverklagi við björgunaraðgerðirnar.

„Já, það er þannig. Við áttum samtal ég og flugstjórinn í gær þegar útkallið kom og ræddum þetta. Reglan er sú að fara ekki lengur en 20 mílur frá strönd nema að hafa backup. Það má segja að hann hafi þverbrotið allar reglur og að það ætti kannski bara að áminna hann en þarna eru 17 menn í sjónum og þeir ræddu þetta sín á milli áhafnarmeðlimir og það voru allir sammála um að fara og í raun var ekkert val með það,“ sagði Georg.

„Þetta er ekki gott skipulag“

Georg sagði óheppilegt að setja áhafnir Landhelgisgæslunnar í þá stöðu að þurfa að taka slíkar ákvarðanir. Þyrlur Gæslunnar væru þó mun fullkomnari í dag en þegar 20 mílna reglan var sett.

Að sögn Georgs fór um flugstjórann þegar þyrlan var komin langt út á sjó í kolniðamyrkri. Vindhraðinn var 50 hnútar og ölduhæð sex metrar.

„Þetta er ekki gott skipulag,“ sagði Georg.

Hann benti þó á að viðvera TF-Sif, flugvélar Landhelgisgæslunnar, hefði skipt miklu máli. Úr flugvélinni væri meðal annars hægt að varpa gúmmíbátum í sjóinn auk þess sem hún nýttist við að finna bestu flugleiðirnar og halda uppi samskiptum.

Töluðu líf í skipverjana

Skipstjóri Jökuls tók með sér neyðartalstöð þegar hann fór í sjóinn ásamt öðrum skipverjum. Að sögn Georgs var skipstjórinn í sambandi við Landhelgisgæsluna meira og minna allan tímann eftir það.

Georg sagði það ekki hafa gerst áður að Gæslan væri í slíku beinu sambandi við skipverja í sjónum. Hann lýsti mikilvægi samskiptanna með þeim orðum að þeir hefðu talað líf í mennina.

TF-Sif var fyrst á vettvang. Georg sagði viðhorf skipverjanna hafa gjörbreyst þegar þeir sáu flugvélina og vissu að fylgst væri með þeim.

Nálguðust þolmörkin

Skipverjarnir á Jökli voru í um fjórar klukkustundir í sjónum. Allir voru þeir í flotgöllum en að sögn Georgs er talið að menn geti lifað af í fimm til sex klukkustundir í sjónum í slíkum göllum, séu þeir lokaðir og allt í lagi.

Skipverjarnir hafi því verið farnir að nálgast þolmörkin. Sagði Georg greinilegt að þar hefðu farið harðgerðir menn.

Georg lýsti jafnframt mikilli aðdáun á áhöfn þyrlunnar.

„Engu að síður fyllist maður aðdáun á þessum mönnum. Þetta er kjarkur sem þarf en þetta byggir líka á skynsemi og útreikningum þeirra,“ sagði Georg.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab