„Það má segja að hann hafi þverbrotið allar reglur og það ætti kannski að áminna hann“
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 09:45
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Skjáskot af vef RÚV
Flugstjórinn sem flaug þyrlunni í átt að slysstað í gærkvöldi þverbraut allar reglur til að koma skipverjum til bjargar segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðinum. Þrír sjómenn létust en fjórtán var bjargað.
Sjá einnig: „Við gátum séð þá einn af öðrum stökkva í sjóinn“
Á blaðamannafundinum spurði Andrea Sigurðardóttir blaðamaður á Morgunblaðinu hvort það hafi við vikið frá verklagi til að koma að björguninni.
„Já. Það er þannig. Við áttum samtal ég og flugstjórinn í gær þegar útkallið kom og ræddum þetta. Reglan er sú að fara ekki lengra en tuttugu mílur frá ströndu nema hafa backup. Það má segja að hann hafi þverbrotið allar reglur og það ætti kannski að áminna hann. En, þarna eru sautján menn í sjónum, þeir ræddu þetta sín á milli og það voru allir sammála um að fara. Í raun var enginn vafi með það. En þetta eru ekki góðar aðstæður til að setja áhafnir í, að þurfa að taka þessa ákvörðun,“ segir Georg.
„Vélarnar eru orðnar miklu betri en var þegar þessar tuttugu mílna reglur voru settar. Flugstjórinn sagði mér að það hefði farið um hann þar sem hann var kominn langt út á sjó í fimmtíu mílna vindi og sex metra ölduhæð. Þannig að þetta er ekki gott skipulag. Við höfum okkur til málsbóta að flugvélin TF-Sif hún var send með og hún hefur möguleika á að kasta út gúmmíbátum og finna bestu flugleiðir og deila samskiptum. Þannig að það hjálpaði verulega til.“
Hann segir að áhöfnin sé ánægð með að hafa farið.
„Þetta er ekki gott en engu að síður fyllist maður aðdáunar á þessum mönnum. Þetta er kjarkur sem þarf en það byggir líka á skynsemi og útreikningum þeirra. Menn eru mjög sælir með að hafa farið núna.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗