Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,8%

Verðbólgan hjaðnar lítillega.

Verðbólgan hjaðnar lítillega. mbl.is/G.Rúnar

Tólf mánaða verðbólga mælist 5,8% samanborið við 5,9% í síðasta mánuði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.

„Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í nóvember 2026, er 696,6 stig (maí 1988=100) og lækkar um 0,54% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 553,5 stig og lækkar um 0,93% frá október 2026,“ segir í tilkynningunni.

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 21,8% og föt og skór lækkuðu um 3,4%. Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 0,5%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í nóvember 2026, sem er 696,6 stig, gildir til verðtryggingar í janúar 2027.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab