„Þeir skildu engan eftir“

Blaðamannafundur vegna sjóslyss. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

Blaðamannafundur vegna sjóslyss. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. mbl.is/Karítas

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir sjóslysið austur af landi í gær vera eitt það mannskæðasta hér við land síðustu áratugi. Þrír skipverjar á Jökli létust í slysinu en fjórtán var bjargað.

Þetta kom fram á blaðamannafundi í ráðherrabústaðnum í morgun.

Kristrún sagði um hörmulegt slys að ræða en jafnframt mikið björgunarafrek. Björgunin hefði verið „þrekvirki við einstaklega erfiðar aðstæður“.

Hún sagði að sannarlega hefði verið unnin hetjudáð í gær og að skipverjarnir á Jökli hefðu unnið kraftaverk með samstöðu sinni í kjölfar slyssins.

„Þeir skildu engan eftir.“

Blaðamannafundur vegna sjóslyss. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.

Blaðamannafundur vegna sjóslyss. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. mbl.is/Karítas

Þjóðin öll finnur til

Kristrún sagði það fylla landsmenn sorg þegar fólk léti lífið í slysum og ætti það sérstaklega við um slys á sjó.

„Á sorgarstund sem þessari þá stöndum við öll saman. Við vottum samúð okkar og við þökkum þrekvirki viðbragðsaðila sem hættu eigin lífi til að bjarga skipverjum á Jökli og þeim verður aldrei fullþakkað. Þjóðin öll finnur til með þeim skipverjum sem lifðu og hugur okkar er hjá aðstandendum þeirra þriggja sjómanna sem létu lífið í gær. Blessuð sé minning þeirra,“ sagði Kristrún.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra vottaði einnig aðstandendum þeirra sem fórust sína dýpstu samúð og sagði hug sinn hjá þeim fjórtán skipverjum sem komust lífs af og fjölskyldum þeirra.

„Ég tek undir með forsætisráðherra að það var mögnuð upplifun að vera í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi,“ sagði Þorbjörg Sigríður.

Breyttu um stefnu til að koma félögum sínum til bjargar

Hún sagði erfitt að finna orð sem lýstu björgunarafrekinu sem unnið var í gærkvöldi en hugurinn væri jafnframt hjá þeim þremur sem fórust.

Þorbjörg Sigríður þakkaði Landhelgisgæslunni, áhöfnum Gróar og Sifjar, lögreglunni, Landsbjörg, fiskiskipum, Rauða krossinum og heilbrigðisstarfsfólki.

Hún hrósaði áhöfn Jökuls sérstaklega og sagði viðbrögð skipverjanna og nýtingu þeirra á öryggisbúnaði hafa auðveldað björgunaraðilum störf sín.

Þá nefndi hún að fjöldi sjómanna hefði breytt um stefnu til að koma félögum sínum til bjargar.

Lesa má nánar um tímalínu slyssins og björgunaraðgerðanna í samantekt mbl.is.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab