Stjörnuparið hvort í sína áttina
Bandaríski tennisleikarinn Ben Shelton og Trinity Rodman, knattspyrnukona hjá Washington Spirit og bandaríska landsliðinu, eru hætt saman, samkvæmt Daily Mail.
Miðillinn greindi frá því að krefjandi dagskrá þeirra og mikil fjarlægð hefðu gert sambandið erfitt, en að þau séu enn náin. Þau eru bæði 24 ára og opinberuðu samband sitt í mars 2025.
Rodman ferðaðist reglulega til að styðja Shelton á Opna bandaríska meistaramótinu í ár á sama tíma og hún spilaði sjálf sitt eigið tímabil.
Hann kallaði tilraun hennar til að mæta á úrslitaleikinn „magnað afrek af hennar hálfu“ í viðtali við New York Post í október.
„Ég veit að það var erfitt fyrir hana að leggja svona hart að sér til að komast hingað,“ sagði Shelton. Rodman kom í tæka tíð fyrir verðlaunaafhendinguna eftir að hafa spilað leik í Boston fyrr um daginn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/55/1695547.jpg)