Frjó hrogn AquaGen heimiluð víðar

Mynd úr seiðeldisstöðinni að Hallkelshólum.

Mynd úr seiðeldisstöðinni að Hallkelshólum. Ljósmynd/Arnarlax

Matvælastofnun hefur heimilað notkun frjórra laxahrogna frá framleiðandanum AquaGen á fjórum seiðaeldisstöðvum til viðbótar. Leyfin koma til viðbótar við sambærileg leyfi sem veitt voru fyrr í haust.

Um er að ræða seiðaeldi Fjallalax á Hallkelshólum, eldisstöðvar Íþórs í Þorlákshöfn og eldisstöðvar Arnarlax á Gileyri í Tálknafirði og að Laxabraut í Þorlákshöfn.

Athugasemdir bárust frá Landssambandi veiðifélaga og Benchmark Genetics þar sem lagst er gegn leyfinu.

Sem fyrr vísar Mast í svörum sínum til þess að erfðablöndunaráhætta sé ekki meiri af þessum hrognum en þeim sem áður hafi verið í notkun hér á landi.

Hlekkir á tilkynningar um leyfin með athugasemdum og svörum:

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab