„Við gátum séð þá einn af öðrum stökkva í sjóinn“
„Þetta var hörmulegt slys en líka björgunarafrek,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðinum þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgissgæslunnar, sátu einnig fyrir svörum. „En þrír skipverjar létust sem er þyngra er tárum taki.“
Kristrún vottaði aðstandendum samúðar og þakkaði bæði viðbragðsaðilum og skipverjunum sjálfum fyrir.
Kristrún sagði að það snerti sérstaka taug hjá Íslendingum þegar slys verða á sjó og þetta sé eitt mannskæðasta slys á sjó í langan tíma. En slysið hefði geta orðið miklu verra ef fólk hefði ekki unnið þessa hetjudáð.
Þorbjörg Sigríður sagði að sjómennirnir og aðstandendur hafi gegnið í gegnum eitthvað sem flestir eiga erfitt með að átta sig á. Það hafi einnig verið aðdáunarvert að fylgjast með því viðbragði sem fór í gang. Nefndi hún meðal annars viðbragð lögreglu, heilbrigðisstarfsfólks og fleiri.
„Það var fjöldi af fiskiskipum sem stendu þangað til að koma félögum sínum til bjargar,“ sagði Þorbjörg klökk.
Brutu verklag
Georg reifaði atburðarásina þegar skipstjóri tilkynnti um lekann og allir fóru í flotgalla með staðsetningarbúnaði.
„Við gátum séð þá einn af öðrum stökkva í sjóinn,“ sagði hann.
Reifaði hann einnig viðbragð gæslunnar, svo sem ferð þyrlunnar, flugvélar, samskipti við erlenda aðila og fleira. Skipstjórinn hafi náð að taka með sér talstöð og hafi getað verið í sambandi við gæsluna þó það væri slitrótt.
Viðhorf áhafnarinnar hafi breyst mikið þegar þeir sáu flugvélina. Þá kom von.
„Áhöfn þyrlunnar þurfti að taka margar erfiðar ákvaðanir,“ sagði Georg og nefndi að það hafi þurft að brenna 200 kíló af olíu til að geta tekið alla mennina um borð. Bruninn hafi tekið 15 mínútur.
Gallarnir hafi þolað 5-6 klukkutíma og menn hafi verið alveg komnir að þolmörkum.
Tveir sigmenn hafi verið um borð í þyrlunni og kom fram að það hafi verið erfitt að losa skipverja úr netum og flækjum. Það hafi þurft að klippa þá lausa. Víkja hafi þurft frá björgunarverklagi við þessa björgun. Þeir hafi farið lengra einir en mátt samkvæmt verklagi.
„Ég ætla að fullyrða að þarna var unnið þrekvirki,“ sagði Georg. Þyngra en tárum taki að þrír hafi látist en það sé guðs blessun að fjórtán hafi verið bjargað.
Aðspurður sagði Georg að annar björgunarbáturinn hafi verið fastur en hinn hafi rekið frá mönnunum. Málið verði tekið fyrir hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Þyrla ekki hilluvara
Þyrlumál hafa verið mikið í umræðunni og bæði Georg og Kristrún voru spurð hvort að stjórnvöld væru að gera nóg til að tryggja öryggi sjófarenda.
Georg nefnir að það hefði getað haft áhrif á viðbragðstímann ef þyrla væri á Akureyri. Loftlínan er mun styttri á slysstað þaðan.
„Þetta er hvorki staður né stund til að fara á dýptina með staðsetningu og fjölda þyrla en málið sýnir mikilvægi þess að viðbragð sé dreifðara um landið,“ sagði Kristrún. Málið sé í umræðu og henni verði flýtt. Vonandi klárað á þessu kjörtímabili.
Þorbjörg Sigríður nefndi einnig að það væri ekki auðvelt að útvega þyrlu. „Þyrla er ekki hilluvara,“ sagði hún.
Georg nefndi einnig að þyrlur væru flóknir gripir, viðhaldsfrekir og erfitt að treysta á þær.
„Til að hafa tvær í lagi þurfum við að hafa fjórar,“ sagði hann.
Það sama á við um björgunarskipin.
„Þetta eru dýr tæki og erfið í rekstri fyrir fámenna þjóð,“ sagði Georg.
Georg sagðist hafa hitt sex skipverja í nótt og þeir hafi borið sig vel. Það hafi verið átakanleg sjón að sjá þá, hálfdasaða með teppi en samt furðuspræka.
„Íslensir sjómenn eru gerðir úr öðru efni greinilega,“ sagði hann.
Fréttin er uppfærð
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗