Tækniþjálfun Gylfa Sig skilaði tug milljóna króna hagnaði í fyrra

433

Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 09:30

Gylfi Þór Mynd - Tækniþjálfun

GSIS sf., félagið á bak við Tækniþjálfun Gylfa Sig, skilaði 37 milljóna króna hagnaði á árinu 2025 samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins sem birt var í gær.

Eigendur félagsins eru Gylfi Þór Sigurðsson, einn fremsti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, og Ingólfur Sigurðsson.

Viðskiptablaðið tók saman upplýsingar um 400 samlags- og sameignarfélög sem greiddu mestan tekjuskatt í fyrra. Hagnaðurinn var reiknaður út frá upplýsingum í álagningarskrá lögaðila.

Samkvæmt úttektinni nam hagnaður GSIS sf. 37 milljónum króna en áætlaðar launagreiðslur voru skráðar núll krónur.

Tækniþjálfun Gylfa Sig hefur notið mikilla vinsælda meðal ungra knattspyrnuiðkenda undanfarin ár.

Ingólfur kom starfseminni á laggirnar árið 2023 en Gylfi Þór bættist í þjálfarahópinn árið 2024. Í kjölfarið var nafni starfseminnar breytt í Tækniþjálfun Gylfa Sig.

Þar er boðið upp á sérhæfða knattspyrnuþjálfun fyrir börn og unglinga með áherslu á tæknilega getu og einstaklingsbundnar framfarir.

Gylfi Þór á að baki glæsilegan atvinnumannaferil en hann lék um árabil í ensku úrvalsdeildinni með Swansea, Tottenham og Everton. Hann hefur einnig verið lykilmaður íslenska landsliðsins og tók þátt í EM 2016 og HM 2018.

Reynsla hans af hæsta stigi knattspyrnunnar nýtist nú við uppbyggingu ungra leikmanna hér á landi.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab