Aftur til Elkem og nú sem forstjóri

Járnblendisverksmiðja Elkem á Grundartanga.

Járnblendisverksmiðja Elkem á Grundartanga. mbl.is/Sigurður Bogi

Örvar Sveinsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Elkem á Íslandi. Hann hafði áður starfað hjá Elkem í átta ár, en í millitíðinni hefur hann stýrt framleiðslustarfsemi hjá Össuri.

Örvar tekur til starfa þann 12.nóvember næstkomandi en hann tekur við af Birki Guðmundarsyni, sem hefur gegnt hlutverki forstjóra tímabundið síðustu mánuði en Álfheiður Ágústsdóttir, sem var forstjóri félagsins frá 2020, hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Travel Connect. 

Í tilkynningunni er vísar Örvar til nýs raforkusamnings fyrirtækisins, en um daginn var tilkynnt um að Landsvirkjun og Elkem hefðu endurnýjað samning fyrirtækjanna sem átti að gilda til ársins 2029 til ársins 2039.

„Ég hlakka mikið til að taka við starfi forstjóra Elkem á Íslandi. Eftir að hafa starfað hjá Elkem í átta ár fyrr á starfsferlinum þekki ég fyrirtækið og reksturinn vel. Þar starfar öflugur hópur fólks með mikla reynslu og þekkingu. Nýr raforkusamningur til ársins 2039 er stórt og mikilvægt skref fyrir Elkem á Íslandi. Hann skapar aukinn fyrirsjáanleika og traustari grunn fyrir framtíð rekstursins.

Undanfarin ár hjá Össuri hef ég öðlast dýrmæta reynslu af því að leiða stóra og fjölbreytta framleiðslustarfsemi innan alþjóðlegs fyrirtækis. Ég hlakka til að nýta þá reynslu og vinna með öflugu teymi Elkem að áframhaldandi þróun starfseminnar á Grundartanga og þeim tækifærum sem fram undan eru,“ er haft eftir Örvari. 

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅