Aðsend grein: Agi og frumkvæði – lykill að árangursstjórnun KFK
He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, í kínverska sendiráðinu. mbl.is/Árni Sæberg
Aðsend grein úr Morgunblaðinu:
Íslendingar segja gjarnan: „Sinn er siður í hverju landi“, og víst er að ólíkar þjóðir fara oft mismunandi leiðir til að leysa úr sameiginlegum vandamálum. Þess vegna er mikilvægt að ræða saman um lausn þeirra. Það er langt á milli landa okkar, mikill munur á stærð þeirra, stjórnmálakerfi, þjóðfélagi og siðum. Þess vegna bauð nýlegur fundur í Peking á milli Wang Yi utanríkisráðherra Kína og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra Íslands upp á gott tækifæri til að líta fram hjá þessum mun og velta upp spurningu sem skiptir bæði löndin miklu máli: hvernig geta stjórnmálaflokkar og ríkisstjórnir haldist skilvirkar, ábyrgar og trausts verðar?
Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, sem er félagi í stjórnmálanefnd miðstjórnar KFK, var nýkominn af fimmta allsherjarfundi miðstjórnar, þegar hann hitti Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur 29. október sl. Hann notaði tækifærið til að upplýsa hana um niðurstöður fundarins. Wang Yi undirstrikaði meginreglu kínverskra stjórnmála: KFK verður að lúta ströngum aga og sýna frumkvæði í framkvæmd við stjórn ríkisins. Hann verður stöðugt að hafa hemil á eigin hegðun með ströngu eftirliti til að viðhalda framsæknu eðli sínu og heiðarleika. Það er eina leiðin til að varðveita náin tengsl við alþýðu manna og getu flokksins til forystu fyrir áframhaldandi þróun landsins.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra óskaði KFK til hamingju með fundinn, hrósaði Kína fyrir árangursríkar framfarir og lýsti vilja Íslendinga til að dýpka samstarf sitt við Kína á sviði viðskipta, fiskveiða, jarðvarmaorku og grænna umbreytinga.
Þessi orðaskipti voru meira en venjubundin diplómatísk samskipti. Þau drógu fram mikilvæga vídd í samskiptum Kína og Íslands: gagnkvæman skilning á því hvernig ólík stjórnmálakerfi skipuleggja samfélagið, fara með opinbert vald, stuðla að þróun og bregðast við væntingum almennings.
Viðfangsefni kínverskra stjórnmála mótast af gríðarlegum íbúafjölda, miklum fjölbreytileika á milli ólíkra svæða og flóknum þróunarverkefnum. Samræma þarf landsmarkmið, viðhalda langtímastefnumótun, styrkja stofnanir og fara í stórfelldar virkjanir auðlinda. Ísland er hins vegar tiltölulega lítið land á norðurhjara með stjórnskipan, félagslega samsetningu og efnahagslegan grunn sem er mjög frábrugðinn kínverskum veruleika.
Kínverjar og Íslendingar hafa hvorir fyrir sig náð miklum árangri á eigin forsendum. Kína hefur nýlokið við að halda 33. fund efnahagsleiðtoga á Kyrrahafssvæðinu, APEC, í Shenzhen, borg, sem var lítill útgerðarbær fyrir aðeins fjórum áratugum. Ísland er gjarnan nefnt sem það land sem náð hefur einna lengst á sviði í kynjajafnréttis. Ekkert land er samt án áskorana og bæði geta þau lært hvort af öðru. Reyndar standa þau bæði frammi fyrir áleitnum spurningum: Hvernig geta flokkar og ríkisstjórnir viðhaldið skilvirkni sinni? Hvernig er hægt að koma í veg fyrir spillingu og valdníðslu? Hvernig getur efnahagsþróun gagnast venjulegu fólki? Hvernig er hægt að varðveita samfélagslega samheldni? Og hvernig geta flokkar og ríkisstjórnir brugðist við langtímaáskorunum en jafnframt tekið ábyrgð á ákvörðunum sínum? Þessar sameiginlegu spurningar gefa okkur tækifæri til að læra hvert af öðru.
Í október 2026 leiddi Lu Kang, varaforstöðumaður alþjóðadeildar miðstjórnar KFK, sendinefnd sem heimsótti Ísland. Hann átti fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis og hitti einnig Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu. Heimsóknin veitti tækifæri til að styrkja pólitísk samskipti og dýpka gagnkvæman skilning íslenskra og kínverskra forystumanna. Slíkar samræður eru sérstaklega dýrmætar fyrir lönd með ólík stjórnmálakerfi.
Í augum KFK snúast samskipti við íslenska flokka um að miðla reynslu, ræða sameiginlegar áskoranir og greina þau svið þar sem samvinna ríkjanna getur skilað hagnýtum, gagnkvæmum ávinningi. Þau veita tækifæri til að læra af reynslu Íslands á sviðum kynjajafnréttis, umhverfisverndar, endurnýjanlegrar orku, opinberrar þjónustu, félagslegrar velferðar og þróunar á Norðurlöndunum. Fyrir íslenska stjórnmálaflokka bjóða samskipti við KFK upp á tækifæri til að skilja betur hvernig Kínverjar standa að eigin þróun, opinberri stjórnsýslu, draga úr fátækt og stuðla að félagslegum stöðugleika.
Reynsla Kínverja og Íslendinga bendir til þess að meta verði stjórnkerfi og stjórnarhætti ríkja í ljósi aðstæðna, sögulegrar þróunar, stofnanahefða og þarfa íbúanna á hverjum stað. Til að við getum lært hvert af öðru verður að ríkja jafnrétti, virðing og vilji til að skilja pólitískt og sögulegt samhengi að baki reynslu hverrar þjóðar.
Árangur samskipta Kína og Íslands á undanförnum 55 árum sýnir að ríki af ólíkri stærð og með ólík stjórnmálakerfi geta unnið saman á grundvelli jafnréttis og gagnkvæms ávinnings.
Þegar Kínverjar og Íslendingar opna næsta kafla í diplómatískum samskiptum sínum geta aukin samskipti milli stjórnmálaflokka stuðlað að gagnkvæmum skilningi í hagnýtu tvíhliða samstarfi. Slík samskipti geta stuðlað að alþjóðlegri umræðu um skilvirkt stjórnarfar, stofnanaábyrgð og sjálfbæra þróun. Ólíkar leiðir, gagnkvæm virðing og gagnkvæmt nám: það skapar grundvöll fyrir samskipti Kínverja og Íslendinga inn í framtíðina.
He Rulong er sendiherra Kína á Íslandi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗