Illa farið með United í gær?
Ashley Young, fyrrverandi leikmaður Manchester United, sagði ákvarðanir dómarans Szymons Marciniak „ekkert annað en skandal“ eftir 2:2-jafntefli United gegn Sporting í Meistaradeildinni í knattspyrnu.
Young gagnrýndi fyrra gula spjaldið sem Youri Tielemans fékk. Dómarinn hafði flautað aukaspyrnu áður en Amad Diallo kom boltanum í netið og markið fékk því ekki að standa.
„Þetta hefði aldrei átt að vera gult spjald og þetta hefði átt að vera jöfnunarmark,“ sagði hann. Tielemans fékk síðar annað gult spjald.
Hann mótmælti einnig þeirri ákvörðun að dæma af sigurmark United undir lokin vegna viðskipta Patricks Dorgu við markvörðinn Kaique Pereira.
„Markvörðurinn kemur út og slær út í loftið áður en nokkur snertir hann. Ég skil ekki hvernig þetta fór í VAR.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗