Logi nýr forstjóri Símans
Logi Karlsson hefur verið ráðinn forstjóri Símans ehf. og tekur við starfinu 1. desember nk. María Björk Einarsdóttir hefur stýrt Símanum samhliða starfi forstjóra Ása frá því að fjarskiptareksturinn var færður í sérstakt dótturfélag í júlí.
í tilkynningu frá Ásum hf. kemur fram að Logi hafi verið framkvæmdastjóri tækniþróunar hjá Símanum frá 2023 og samhliða sinnt starfi framkvæmdastjóra upplýsingatækni hjá Ásum.
Áður starfaði Logi hjá Íslandsbanka frá 2016, síðast sem forstöðumaður nýsköpunar og stafrænnar þróunar. Logi er með Ph.D.-gráðu í markaðsfræði og MBA-gráðu, hvort tveggja frá Sydney Business School, og BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands.
Samhliða munu upplýsingatæknimál Ása flytjast á önnur svið og fækkar framkvæmdastjórum um einn.
„Logi þekkir rekstur og starfsfólk Símans vel og hefur náð eftirtektarverðum árangri á miklum umbreytingartímum. Hann hefur meðal annars leitt uppbyggingu 5G-þjónustu Símans og stafræna þróun félagsins, þar sem eldri innviðum hefur markvisst verið skipt út og gervigreindarlausnir innleiddar með skýrum ávinningi. Hann er því vel í stakk búinn til að leiða Símann inn í næsta kafla,“ er haft eftir Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Ása hf. í tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗