Biskup biður fyrir sjómönnunum og ástvinum þeirra: „Þjóðin öll stendur með þeim í sorginni“
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 09:14
Guðrún Karls Helgudóttir. Skjáskot/RÚV
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, hefur birt bæn vegna sjóslyssins fyrir austan í gær þar sem þrír skipverjar á fiskiskipinu Jökli ÞH létust.
Biskup biður fyrir þeim sem komust lífs af, þeim sem létust og ástvinum þeirra sem biðu fregna af afdrifum skipverjanna í gærkvöldi.
„Við biðjum fyrir ástvinum þeirra sem beðið hafa milli vonar og ótta vítt og breitt um landið. Styrk þau sem nú hafa orðið fyrir óbærilegri sorg og umvef þau kærleika þínum,“ segir í bæninni sem biskup birti á Facebook í morgun.
Þar er einnig þakkað fyrir framgöngu þeirra fjölmörgu sem komu að björgunaraðgerðum við erfiðar aðstæður.
„Guð ljóssins, við þökkum fyrir allt það hugrakka fólk sem tók þátt í björgunaraðgerðunum. Við þökkum fyrir kjark þeirra, seiglu og óeigingjarna þjónustu við erfiðar aðstæður.“
Biskup biður einnig fyrir heilbrigðisstarfsfólki og öðrum sem munu annast skipverjana og styðja ástvini þeirra á komandi dögum, vikum og mánuðum.
„Guð, umvef þau sem nú syrgja og sakna. Gef þeim styrk og huggun og lát þau finna að þjóðin öll stendur með þeim í sorginni.“
Í lok bænarinnar er samheldni íslensku þjóðarinnar á erfiðum stundum gerð að umtalsefni.
„Guð, þjóðin okkar hefur sameinast í bæn. Við erum þakklát fyrir að búa í samfélagi sem stendur saman þegar á bjátar.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗