„Hugur okkar er hjá öllum sem nú eiga um sárt að binda“
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og eiginmaður hennar, Björn Skúlason, senda innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldna og ástvina sjómannanna þriggja sem létust í sjóslysinu fyrir austan. Þetta kemur fram í færslu Höllu á Facebook.
„Þakklæti fyrir þau mannslíf sem tekist hefur að bjarga blandast djúpri sorg yfir þeim sem við misstum. Hugur okkar er hjá öllum sem nú eiga um sárt að binda. Við færum Landhelgisgæslunni, björgunarsveitum, áhöfnum Skinneyjar, Svans og Harðbaks, heilbrigðisstarfsfólki og öllu því góða og hugrakka fólki sem kom að björgunaraðgerðum innilegar þakkir fyrir það þrekvirki sem unnið var við afar erfiðar aðstæður.
Á sorgarstund sem þessari stöndum við saman sem þjóð. Megi samheldni og kærleikur veita okkur styrk.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗