Freyr tjáir sig: Það er sorglegt

Freyr Alexandersson

Freyr Alexandersson Ljósmynd/Rosenborg

Freyr Alexandersson, þjálfari karlaliðs Rosenborgar í fótbolta, staðfesti að umboðsmenn hans ættu í viðræðum við Swansea, velska félagið sem leikur í ensku B-deildinni.

Í viðtali við Nettavisen sagði Freyr það einnig samningsatriði að hann fengi að stýra Rosenborg gegn Molde næstkomandi laugardag áður en hann tæki hugsanlega við Swansea.

„Mér þykir mjög vænt um Rosenborg, leikmannahópinn og starfsfólkið sem ég vinn með,“ sagði Freyr. „En það hefur verið draumur minn að þjálfa í enska boltanum.“

Freyr vildi hvorki staðfesta né neita því hvort Swansea hefði boðið honum starfið og sagðist ekki telja að félögin hefðu hafið viðræður.

„Akkúrat núna, ef ég á að vera alveg hreinskilinn, er þetta bara svolítið erfitt,“ sagði hann. „Að fá tækifæri til að komast inn í enska boltann og á sama tíma vera svona ánægður með liðið mitt. Það er sorglegt.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab