Hvað er efst á óskalista barnanna í ár?
Jólin eru hátíð barnanna og hjá mörgum börnum er óskalistinn sérstaklega langur og tekur jafnvel breytingum frá degi til dags. Unsplash/Anastasiia Chepinska
Sannarlega eru jólin hátíð barnanna og spennan getur verið næstum áþreifanleg þegar líður að jólum. Pakkarnir undir trénu eru skoðaðir úr öllum áttum, nöfnin á merkimiðunum lesin og reynt að giska á hvað leynist undir jólapappírnum. Hjá mörgum börnum er óskalistinn langur og tekur jafnvel breytingum frá degi til dags.
Við val á jólagjöf er gaman að hugsa um það sem fangar athygli barnsins þessa dagana. Sum börn geta setið tímunum saman við að byggja, teikna eða föndra. Önnur vilja helst hreyfa sig, búa til sögur eða kanna hvernig hlutirnir virka. Gjöf sem fellur að þessum áhuga getur orðið upphafið að ótal skemmtilegum stundum löngu eftir að jólapappírinn er kominn í endurvinnsluna.
Leikur getur líka leitt fólk saman, sem og samvera. Oft eru spil sem öll fjölskyldan tekur þátt í vinsæl og svo vitanlega gamla góða bókin, sem opnar heilan heim sem gaman er að heimsækja aftur og aftur.
Hér eru nokkrar gjafahugmyndir fyrir börnin sem geta kveikt forvitni, ýtt undir sköpun og glatt unga viðtakendur. Kannski leynist næsta uppáhaldið þeirra einmitt hér.
Guidecraft, Micki og RasKars-leikföngin frá KRUMMA henta vel saman í kubbaleik. Þau vekja forvitni og opna á enn fleiri möguleika í ímyndunarleik barna. Ljósmynd/Aðsend
Kubbar sem vaxa með barninu
Opinn leikur með kubbum veitir börnum frelsi til að skapa, prófa hugmyndir og finna eigin lausnir. Um leið þjálfa þau fínhreyfingar, rýmisgreind, stærðfræðilega hugsun og hæfni til að leysa vandamál.
Guidecraft, Micki og RasKars-leikföngin frá KRUMMA henta vel saman í kubbaleik. Þau vekja forvitni og opna á enn fleiri möguleika í ímyndunarleik barna. Guidecraft-kubbarnir sameina náttúrulegan við og litríkt, gegnsætt akrýl sem býður upp á leik með liti, ljós og form.
Micki-kubbarnir eru sígildir viðarkubbar í fjölbreyttum stærðum og gerðum sem hvetja til byggingar og skapandi leiks.
Með RasKars sjálfkeyrandi snjallbílum geta börnin síðan útvíkkað leikinn enn frekar og hannað borgir, búið til vegakerfi og þróað umferð með hjálp snjallkubba og RFID-tækni.
Saman skapa þessi leikföng endalausa möguleika í leik, námi og samveru. Kubbar eru leikföng sem vekja forvitni og gleði og endast árum saman.
Kubbarnir fást í verslun KRUMMA að Gylfaflöt 7 í Grafarvogi og á netverslun KRUMMA.
Ekki gefa bara pakka undir jólatréð. Gefðu upplifanir, gleði og minningar sem endast! Ljósmynd/Aðsend
Gefðu ævintýri í jólagjöf!
Ertu að leita að hinni fullkomnu jólagjöf fyrir barnið þitt eða börnin í kringum þig?
Vetrarkort í Bláfjöll eru gjöfin sem gefur gleði allan veturinn. Í stað þess að gefa enn eitt leikfangið geturðu gefið börnunum skemmtilega upplifun, hreyfingu, útiveru og ógleymanlegar minningar.
Vetrarkort eru á tilboði til áramóta og eru því tilvalin í jólapakkann.
Þetta er ekki bara gjöf fyrir jóladaginn heldur er þetta heill vetur af ævintýrum og skemmtun.
Ekki gefa bara pakka undir jólatréð. Gefðu upplifanir, gleði og minningar sem endast!
Vetrarkortin fást á vefsíðunni okkar www.skidasvaedi.is
Vetrarkort í Bláfjöll er einstök jólagjöf sem slær í gegn!
Á Heimavellinum er að finna fjölbreytt úrval jólagjafa fyrir börn sem elska fótbolta. Ljósmynd/Aðsend
Draumajólagjöfin fyrir fótboltabarnið
Er fótboltinn alltaf efstur á óskalistanum? Á Heimavellinum er að finna fjölbreytt úrval jólagjafa fyrir börn sem elska fótbolta.
Ein skemmtilegasta nýjungin fyrir jólin er Mystery BOXD. Í hverjum kassa leynist glæný, ekta fótboltatreyja ásamt fótboltagóðgæti. Treyjan getur verið frá hvaða félagsliði eða landsliði sem er – spennan við að opna kassann er því hluti af gjöfinni!
Sérlega vinsæl jólagjöf fyrir fótboltastelpur er Bayern München-treyja og stuttbuxur með merkingu Glódísar Perlu Viggósdóttur, fyrirliða Bayern München. Frábær gjöf fyrir ungar knattspyrnuhetjur sem eiga sér fyrirmyndir og stóra drauma. Að sjálfsögðu er einnig hægt að fá treyjur stórliðsins merktar stjörnunum Harry Kane og Michael Olise.
Gjafir sem hitta alltaf í mark eru náttföt, rúmföt og handklæði með uppáhaldsliðinu, á borð við Barcelona, Liverpool og Manchester United. Liðanáttfötin fást í stærðum fyrir alla fjölskylduna, allt frá þriggja mánaða aldri til fullorðinsára.
Armböndin „Aldrei gefast upp“, „Dóttir“ og „Ég ❤️ fótbolta“ eru hvetjandi jólagjafir með fallegan boðskap. Með öllum íslenskum landsliðstreyjum fylgir frítt armband að eigin vali.
Á Heimavellinum finnur þú einnig fótboltamörk, æfingavörur, markmannshanska og margt fleira sem gleður fótboltabarnið á jólunum.
Heimavöllurinn – Stærri leikur
Frost ungbarnagallinn frá Icewear er vinsæl gjöf fyrir minnstu krílin. Ljósmynd/Álfheiður Björk Bridde
Jólagjöf sem hlýjar yngstu krílunum
Frost ungbarnagallinn frá Icewear hefur slegið í gegn sem vönduð og praktísk gjöf fyrir yngstu krílin enda nýtist hann vel í íslenskri veðráttu. Gallinn er einangraður með íslenskri ullarfyllingu sem hrindir náttúrulega frá sér vætu og heldur notalegum líkamshita bæði í vagninum og á ferðinni.
Hann er úr mjúku og rifuþolnu skeljaefni sem andar vel og ber OEKO-TEX® STANDARD 100 vottun sem tryggir að efnið sé laust við skaðleg efni og öruggt fyrir viðkvæma húð. Gallinn fæst í tveimur litum og í stærðum fyrir 0–2 ára.
Hjá Icewear fæst jafnframt glæsilegt úrval af vönduðum fatnaði fyrir börn á öllum aldri, þar á meðal mjúk grunnlög úr merínóull sem eru ómissandi undir útifötin í kuldanum.
Vörurnar fást í vefverslun og verslunum Icewear um land allt en með því að gerast Vinur Icewear fást sérkjör af öllum vörum auk þess sem regluleg og vegleg tilboð berast.
Gjafabréf frá Ísbúð Vesturbæjar er kannski lítil gjöf í pakka en getur orðið að stórri stund í minningunni. Ljósmynd/Aðsend
Gefðu samveru í jólagjöf
Jólin snúast um miklu meira en pakkana undir trénu. Þau snúast um samveru, hlýju og minningar sem lifa árum saman. Stundum eru bestu gjafirnar nefnilega ekki hlutir heldur stundir sem við eigum með þeim sem okkur þykir vænt um.
Ísbúð Vesturbæjar hefur verið hluti af íslensku samfélagi í meira en hálfa öld. Allt frá því að fyrsta búðin var opnuð á Hagamel árið 1971 hafa kynslóðir komið til okkar, fengið sér ís og átt notalegar stundir með fjölskyldu og vinum.
Í gegnum árin höfum við séð börn koma með foreldrum sínum í fyrsta skipti og mörgum árum síðar koma þau aftur með eigin börn. Eitt hefur þó ekki breyst. Okkar vinsælasti ís er enn sá eini sanni gamli ís sem hefur fylgt okkur í gegnum árin og vakið upp góðar minningar hjá ótal Íslendingum.
Gjafabréf frá Ísbúð Vesturbæjar er kannski lítil gjöf í pakka en getur orðið að stórri stund í minningunni. Við viljum sérstaklega hvetja ömmur og afa til að gefa barnabörnunum samveru í jólagjöf.
Gjafabréf í Ísbúð Vesturbæjar er tilefni til að hittast, spjalla, hlæja og njóta samverunnar yfir góðum ís. Það eru einmitt þessar stundir sem börnin muna þegar fram líða stundir.
Við höfum meira að segja gert sérstakt samkomulag við jólasveinana um að létta örlítið á þeirra mikla álagi fyrir jólin. Við höfum líka nýlega opnað nýja heimasíðu þar sem nú er hægt að kaupa gjafabréf á einfaldan og þægilegan hátt. Kannski er það einmitt fallegasta jólagjöfin í ár. Ekki bara ís, heldur tími saman.
Happatreyjur bjóða upp á 20% Black Friday-afslátt af öllum vörum á Happatreyjur.is út 1. desember. Ljósmynd/Aðsend
Happatreyjur – jólagjöfin sem gleður unga fótboltaáhugamenn!
Ertu að leita að skemmtilegri jólagjöf fyrir barnið sem elskar fótbolta? Þá er Happatreyja tilvalin gjöf.
Í hverjum Happatreyjukassa leynist ein ekta fótboltatreyja frá óvæntu félagsliði eða landsliði sem getur verið frá hvaða tímabili sem er. Enginn veit hvaða treyja leynist í kassanum fyrr en hann er opnaður!
Það er einmitt það sem gerir Happatreyjur að svo skemmtilegri jólagjöf. Börnin fá ekki bara nýja fótboltatreyju heldur líka skemmtunina við að opna kassann og uppgötva hvaða lið þau fengu. Treyjan nýtist svo krökkunum vel á fótboltaæfingum, í skólanum eða í leik með vinunum.
Núna er líka kjörið tækifæri til að klára jólagjafainnkaupin! Happatreyjur bjóða upp á 20% Black Friday-afslátt af öllum vörum á Happatreyjur.is út 1. desember.
Happatreyjur fást einnig í öllum verslunum Hagkaups, Bónuss og Nettó.
Í desember fæst 25% afsláttur þegar keyptir eru fjórir eða fleiri gjafamiðar hjá Flyover Iceland svo öll fjölskyldan getur flogið með í ævintýrið. Ljósmynd/Aðsend
Upplifun sem fræðir og vekur forvitni
Stundum eru bestu gjafirnar minningar og samvera. Með gjafabréfi frá Flyover Iceland gefur þú barninu upplifun sem fræðir, vekur forvitni, er ótrúlega mikið fjör og situr lengi í minningabankanum. Það er ansi mikið fyrir einn lítinn miða!
Í desember fæst 25% afsláttur þegar keyptir eru fjórir eða fleiri gjafamiðar, svo öll fjölskyldan getur flogið með í ævintýrið. Árskortin eru auk þess á sérstöku tilboðsverði og passa sérlega vel í pakka fyrir ævintýragjörnu börnin sem vilja fljúga aftur og aftur.
Gjafamiðarnir gilda í eitt ár frá kaupdegi og nýtast á allar sýningar Flyover á Íslandi. Við miðasöluborðið er líka hægt að fá þá fallega innpakkaða, tilbúna undir jólatréð.
Afsláttarkóðinn JOL virkjar afsláttinn þegar gjafamiðar eru keyptir á netinu.
LEGO er þó ekki bara skemmtileg jólagjöf heldur líka frábær leið fyrir fjölskylduna til að verja tíma saman yfir hátíðirnar. Ljósmynd/Aðsend
LEGO hefur lengi verið í uppáhaldi hjá börnum á öllum aldri og er sígild jólagjöf sem stendur alltaf fyrir sínu. Hjá ELKO er að finna fjölbreytt úrval LEGO-setta fyrir ólíkan aldur og áhugasvið, hvort sem barnið hefur áhuga á bílum, dýrum, Disney, Harry Potter eða ofurhetjum.
Fyrir yngstu börnin er DUPLO frábær kostur. Stóru kubbarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir litlar hendur og gefa börnum tækifæri til að þjálfa fínhreyfingar, sköpunargáfu og ímyndunarafl í gegnum leik.
Fyrir eldri börn er úrvalið ekki síður spennandi, allt frá einföldum byggingarsettum yfir í stærri og meira krefjandi LEGO-sett.
LEGO er þó ekki bara skemmtileg jólagjöf heldur líka frábær leið fyrir fjölskylduna til að verja tíma saman yfir hátíðirnar. Það er fátt notalegra en að setjast niður með börnunum, opna nýtt LEGO-sett og byggja eitthvað saman.
Hjá ELKO er að finna fjölbreytt úrval LEGO-setta fyrir ólíkan aldur og áhugasvið.
Hlýr og vandaður útivistarfatnaður frá Bergson er frábær gjöf fyrir börn sem elska að leika sér úti, renna á sleða eða fara á skíði. Ljósmynd/Aðsend
Hlýr og vandaður útivistarfatnaður
Vantar þig nytsamlega jólagjöf sem gleður lengur en yfir hátíðarnar? Hlýr og vandaður útivistarfatnaður frá Bergson er frábær gjöf fyrir börn sem elska að leika sér úti, renna á sleða eða fara á skíði.
LUPO-skíðaúlpan er hlý, lipur og þægileg og hentar vel í íslenskt vetrarveður. Hún fæst í stærðum 128–176 og í fjölbreyttum litum, svo bæði yngri börn og unglingar ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Úlpan er með góðum vösum, hettu og sérstökum vasa fyrir skíðapassa.
PELLY-skíðabuxurnar fást í stærðum 116–176 og mörgum skemmtilegum litum. Þær eru hlýjar, þægilegar og gefa gott svigrúm til hreyfingar. Buxurnar má einnig lengja um fimm sentímetra, svo þær geti enst barninu lengur.
Bergson býður upp á fjölbreytt úrval, margar stærðir og sanngjarnt verð.
Tilvalið fyrir krakka á öllum aldri sem vilja njóta vetrarins utandyra.
Blackzon Slyder er fjórhjóladrifinn og getur náð um 30 km/klst hraða með möguleika á að stilla hámarkshraðann. Ljósmynd/Aðsend
Vinsælir bílar fyrir alls kyns ævintýri
Fjarstýrði bíllinn Blackzon Slyder hefur reynst mjög vel og hentar ungum ökuþórum. Hann er fjórhjóladrifinn og getur náð um 30 km/klst hraða með möguleika á að stilla hámarkshraðann.
Allir varahlutir eru fáanlegir fyrir bílinn auk úrvals aukahluta eins og til dæmis aukarafhlöður og önnur dekk. Bíllinn fæst í nokkrum litum þannig að fleiri geta leikið saman.
Bíllinn er 27 cm langur í 1/16 stærðarhlutfalli, endurhlaðanleg 7,4 V hleðslurafhlaða og USB-hleðslusnúra fylgja sem og LED-framljós. Bíllinn er vatnsvarinn en ekki er mælt með að kafa í djúpa polla.
Þetta eru bílar sem hafa verið vinsælir og hafa lifað af ýmis ævintýri vegna sterkleika miðað við stærð.
Það skemmtilega við baunastólinn er hvað hann nýtist á ólíkan hátt. Einn daginn er hann notalegt sæti fyrir bíókvöld eða lestrarstund og þann næsta er hann orðinn hluti af skemmtilegum leik. Ljósmynd/Aðsend
Fullkomið fyrir kósístund, lestur og leik
Baunastólarnir frá Wigiwama eru frábær jólagjöf fyrir börn sem vilja eiga sinn eigin stað til að koma sér vel fyrir og hafa það notalegt. Baunastólarnir eru fullkomnir fyrir kósístundir, lestur og leik. Stóllinn er gerður úr mjúku hágæðaefni sem er einstaklega þægilegt.
Stólarnir fást í ýmsum litum og það er auðvelt að finna lit sem passar inn í barnaherbergið eða annars staðar á heimilinu. Hægt er að fá stólana með mjúku bangsaáklæði eða mjúku riffluðu flaueli (corduroy).
Það skemmtilega við baunastólinn er hvað hann nýtist á ólíkan hátt. Einn daginn er hann notalegt sæti fyrir bíókvöld eða lestrarstund og þann næsta er hann orðinn hluti af skemmtilegum leik.
Baunastólarnir frá Wigiwama fást hjá MiniPlay í Tónahvarfi 10, 203 Kópavogi og á miniplay.is.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗










