Dregur mat nefndarinnar í efa

Úlfar Lúðvíksson stóð í ströngu sem yfirmaður almannavarna á Reykjanesi þegar jarðeldar brutust út í nágrenni Grindavíkur. Hann var einnig með landamæragæsluna á Keflavíkurflugvelli á sinni könnu sem mikið mæddi á. mbl.is/Kristinn Magnúss

Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, kallar eftir rökstuðningi fyrir því hvers vegna hann er ekki metinn í hópi hæfustu umsækjenda um embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Hann hefur stýrt sameiningu lögregluembætta en er í drögum hæfnisnefndar metinn á eftir tveimur öðrum umsækjendum í breytingastjórnun. Í starfsauglýsingunni var sérstaklega tekið fram að sameining lögregluembætta á suðvesturhorninu yrði skoðuð og að nýr lögreglustjóri gegndi stóru hlutverki í þeim breytingum sem fram undan væru.

Morgunblaðið fékk drög hæfnisnefndar og skriflegar athugasemdir Úlfars afhent hjá honum. Í drögunum er það samdóma álit nefndarinnar að Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, og María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, séu hæfastar til að gegna embættinu. Sex sóttu um og fjórir voru boðaðir í viðtal. Dómsmálaráðuneytið greindi frá því 23. nóvember að nefndin hefði skilað umsögn sinni og að þær María og Margrét væru metnar hæfastar.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab