Bannar starfsfólki að taka lyftuna með sér
Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, gagnrýndi forystu eftirmanns síns, Gianni Infantino, harðlega í viðtali við þýska tímaritið Der Spiegel.
„Hann er einræðisherra. Fólk innan FIFA segir mér að enginn megi fara í lyftu með honum. Hann er ósnertanlegur,“ sagði Blatter.
„FIFA líður fyrir þetta. Sambandinu er nú stýrt af manni sem er orðinn blindur,“ bætti hann við og gagnrýndi áform Infantinos, sem horfið var frá, um að selja hluta af viðskiptaréttindum FIFA.
FIFA vísaði ásökunum Blatters á bug og sagði Infantino vel liðinn á meðal starfsfólks sambandsins.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗