Eiginkona Messi vekur mikla athygli eftir að hún birti þessar myndir
Antonela Roccuzzo, eiginkona Lionel Messi, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir að hafa birt myndir úr daglegu lífi sínu á Instagram.
Antonela, sem er með rúmlega 42 milljónir fylgjenda, birti meðal annars mynd af sér í svörtum æfingafatnaði í líkamsræktarstöð.
Þá sýndi hún einnig myndir af sér við sundlaugarbakkann, þar sem hún naut þess að lesa bók og drekka maté. Fjölskyldan fagnaði einnig 14 ára afmæli Thiago, elsta sonar þeirra Messi-hjóna.
Færslan vakti mikla lukku meðal fylgjenda hennar sem létu falleg orð falla um fjölskylduna í athugasemdum.
Á meðan hefur Messi átt erfiða daga inni á knattspyrnuvellinum.
Inter Miami tapaði óvænt 3-0 gegn Columbus Crew í fyrri leik liðanna í úrslitakeppni MLS-deildarinnar.
Messi missti einnig stjórn á skapi sínu í leiknum þegar hann kastaði boltanum í andlit Gonzalo Tapia, leikmanns Columbus.
Inter Miami þarf nú að vinna upp þriggja marka forskot andstæðinganna ætli liðið sér áfram í úrslitakeppninni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗