Opnaði sig um þunglyndið og óttann

Tomas Soucek í leik með West Ham.

Tomas Soucek í leik með West Ham. AFP/Adrian Dennis

Tomáš Souček, tékkneskur landsliðsmiðjumaður West Ham, greindi frá því í sjálfsævisögu sinni að svefnleysi, þunglyndi og ótti við að mistakast hefðu orðið til þess að hann íhugaði að hætta í fótbolta.

„Í tvö ár mætti ég í hvern einasta leik án þess að hafa sofið. Ég reyndi svo mikið að sofna að ég endaði á því að svitna af reiði,“ skrifaði hann m.a.

Hinn 31 árs gamli Souček lýsti því hvernig vandamálin höfðu áhrif á lífssýn hans: „Ég hugsaði um að binda enda á ferilinn. Svefnleysið, þunglyndið og óttinn við framtíðina kvöldu mig.“

Souček leitaði sér faglegrar aðstoðar og líður vel núna. Hann hefur skorað 17 mörk í 94 leikjum fyrir Tékkland, en hann er fyrirliði landsliðsins.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab