Dramatíkin á COP31
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Simon Watts, ráðherra loftslagsmála Nýja-Sjálands, héldu blaðamannafund þar sem sjónum var beint að því hvernig efla megi alþjóðlega samvinnu um jarðhita. Ljósmynd/Stjórnarráðið
„Það var svo sem búið að vera stál í stál svolítið frá upphafi þannig að stefndi í annaðhvort mjög veikt samkomulag eða ekkert samkomulag og það varð niðurstaðan,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í samtali við mbl.is þegar hann lítur yfir nýafstaðna loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, í Tyrklandi þar sem djúpstæður ágreiningur aðildarríkjanna um jarðefnaeldsneytismál stóð samkomulagi fyrir þrifum.
Eldsneytismálin og tregða auðugri ríkja heimsins til að rétta hinum snauðari hjálparhönd urðu slík bitbein, þegar á hólminn var komið, að ráðstefnan var framlengd og varð sú lengsta í þessari loftslagsráðstefnuröð SÞ og auk þess söguleg fyrir þær sakir að í fyrsta sinn síðan á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn fyrir sautján árum, 2009, varð ekki um samkomulag um þrætueplin að ræða.
„Ísland er búið að stilla sér upp með þeim ríkjum sem vilja grípa til afgerandi aðgerða til þess að draga úr losun á heimsvísu og það sem kannski gerði útslagið var í raun beiting olíuframleiðsluríkja á sínu neitunarvaldi gegn því að minnst yrði yfir höfuð á jarðefnaeldsneyti í samkomulagstextanum,“ segir ráðherra.
Vísindin tali afgerandi máli
Segir hann þessi málalok birtingarmynd þeirrar valda- og hagsmunabaráttu sem ætti sér stað í veröldinni um þessar mundir, hvort tveggja á alþjóðasviðinu og innan einstakra ríkja.
Annað sé orðið erfitt en að viðurkenna loftslagsvána, „vísindin segja okkur þetta með mjög afgerandi hætti og jafnvel varfærnustu og íhaldssömustu vísindamenn viðurkenna að við erum að steikja jörðina og eyðileggja þessi náttúrulegu kerfi sem gera hana byggilega“, heldur Jóhann áfram, hinn vísindalegi meginstraumur renni í eina átt hvað þetta snertir, bæði vandann og lausnina – að draga hraðar úr losun en nú sé gert.
Murat Kurum, forseti ráðstefnunnar og umhverfisráðherra Tyrklands, (í miðið) tekur til máls á COP31 þar sem hver höndin var upp á móti annarri í ár. AFP/Yasin Akgul
Spurður út í stemmninguna á ráðstefnunni, sem fulltrúar um 190 ríkja auk Evrópusambandsins sóttu, samtals 93.000 gestir, segir Jóhann COP-ráðstefnur að mörgu leyti sérstök fyrirbæri.
„Þær eru mjög marglaga, í aðra röndina samkoma vísindamanna, félagasamtaka, fræðafólks og áhrifafólks, en hins vegar sækja viðskiptaforkólfar þær. Pólitíska hliðin á þessu er sú hve mikið er í húfi þegar smærri ríki, til dæmis eyþjóðir í Kyrrahafinu og Afríkuríki, upplifa hnattræna hlýnun svo harkalega á eigin skinni sem nú er að verða raunin,“ segir ráðherra, „þetta verður býsna dramatískt þegar maður fundar með fulltrúum ríkja sem eru bókstaflega að sökkva.“
Vilja ekki heyra minnst á jarðefnaeldsneyti
Hann segir heitar umræður hafa kviknað á hinum gríðarmikla ráðstefnuvettvangi í Antalya þegar fulltrúar þeirra þjóða, sem berjast fyrir tilveru sinni og framtíð, tóku til máls og svo hins vegar fulltrúar Sádi-Arabíu sem í ræðu á miðvikudaginn í síðustu viku töldu það upp í löngu máli sem alls ekki mætti rata í lokayfirlýsingu ráðstefnunnar.
„Það sem gerði á endan útslagið er að olíuframleiðsluríkin vilja ekki heyra minnst á jarðefnaeldsneyti í samkomulagstexta og samhliða því var verið að deila um fjárframlög til aðlögunar að loftslagsbreytingum. Þar er auðvitað gerð krafa á ríkari þjóðirnar um aukna þróunaraðstoð til þess að styðja við fátækari ríki í að verja sig fyrir afleiðingum loftslagsbreytinga,“ útskýrir Jóhann.
Hvernig horfir þetta allt saman við þér sem kemur þarna ungur og ferskur ráðherra ofan af Íslandi sem er nú svo sem ekki barnanna verst í heiminum þegar að loftslagsmálum kemur?
„Norðurlöndin standa náttúrulega svolítið saman og hafa að mörgu leyti góða sögu að segja,“ svarar Jóhann og nefnir þann gríðarlega árangur í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa og jarðhita til húshitunar sem náðst hafi á Íslandi, „en við erum engu að síður með mjög stórt kolefnisspor og töluverða losun deilt niður á mann,“ bætir hann við.
Fólk gengur um Konyaalti-ströndina í Antalya á lokadegi ráðstefnunnar í síðustu viku. AFP/Yasin Akgul
Lítil sendinefnd en öflug
Ísland og Norðurlöndin standi mjög þétt með þeim ríkjum sem vilji kalla eftir afgerandi aðgerðum á heimsvísu. „Við vorum með tiltölulega litla, en mjög öfluga, sendinefnd og forgangsröðuðum svolítið stíft okkar áherslumálum, í fyrsta lagi að minnst sé á jarðefnaeldsneyti og að við horfumst í augu við rót vandans og tökum á honum,“ segir Jóhann, en einnig hafi Ísland kallað eftir því að loftslagsskuldbindingar tækju mið af vísindum og vísindalegum niðurstöðum.
„Bara það að tala um þetta er að einhverju leyti viðkvæmt sko. Mörg ríki vilja að sem minnst sé talað um vísindi eða til dæmis milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, IPCC. Þarna var töluvert tekist á um fjármögnun þess vísindastarfs,“ segir Jóhann og er spurður hvort hann telji að viðmót og aðgerðir ríkja heims gegn hnattrænni hlýnun muni einhvern tíma skila árangri sem talist geti viðunandi.
„Ég held að þessi niðurstaða ráðstefnunnar núna, eða öllu heldur ekki niðurstaða, hljóti að vekja okkur öll til umhugsunar,“ svarar hann. „Þetta kallar svolítið á nýtt leikskipulag fyrir þjóðir sem vilja taka loftslagsbreytingar og hnattræna hlýnun alvarlega. Kannski er fullreynt með þetta fyrirkomulag þar sem fræðilega séð þarf ekki nema eina þjóð til þess að koma í veg fyrir að nokkurt samkomulag náist.“
Chris Bowen, loftslagsbreytinga- og orkumálaráðherra Ástralíu og samningastjóri COP31, ávarpar blaðamenn á ráðstefnunni. AFP/Yasin Akgul
Hver er lærdómurinn af COP31?
Jóhann segir lærdóminn af tæplega 100.000 gesta margra daga ráðstefnu í Tyrklandi, sem komst ekki að samkomulagi á efsta degi, einfaldlega vera þann að fulltrúar þeirra þjóða, sem skilji hvað er í húfi og vilji grípa til aðgerða, þurfi að endurskipuleggja sig og ná vopnum sínum.
„Vonandi verður þessi afleita niðurstaða núna til þess að vekja okkur aðeins til umhugsunar og að fólk hvarvetna í heiminum, sem gerir kröfu um að ríki grípi til afgerandi aðgerða gegn hnattrænni hlýnun, taki sig saman í andlitinu og skipuleggi baráttuna betur. Svo koma allir þessir ráðstefnugestir fljúgandi á ráðstefnurnar með tilheyrandi losun og þar er hver höndin upp á móti annarri. Þarna lá það til dæmis alveg fyrir að annaðhvort yrði engin niðurstaða eða að niðurstaðan yrði útvötnuð og lægsti mögulegi samnefnarinn,“ segir ráðherrann enn fremur.
Hann segir það þó ekki tjóa að vera með eintóma neikvæðni og svartagallsraus eftir COP31 og það sem þar fór út um þúfur.
„Þegar maður horfir til baka til þess tíma áður en Parísarsamkomulagið var samþykkt á sínum tíma stefndi í miklu meiri losun en við gerum ráð fyrir núna. Fyrir 20 árum hefðu nú margir rekið upp stór augu hefðu þeir þá heyrt að nokkrum árum síðar yrðu nær öll ríki í heiminum búin að setja sér töluleg markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þannig að þetta hefur skilað okkur töluverðu á meðan fólk er alla vega enn að tala saman einu sinni á ári þótt það geti orðið dramatískt,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, að lokum um COP31 í Tyrklandi þetta árið.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



