Þrítug og sjóðheit á snekkju
Fyrirsætan og athafnakonan Hailey Bieber varð þrítug á sunnudag og birti í gær myndir úr afmælisferð sinni á Instagram. Á einni þeirra tekur eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Justin Bieber, utan um hana og hjónin kyssast á meðan flugeldar lýsa upp himininn.
Á fyrstu myndinni situr Bieber fyrir um borð í snekkju í gylltu bikiníi, með stráhatt á höfði og hlébarðamynstraða slá yfir öxlunum. Á annarri er hún komin í land með Chanel-tösku við sundfötin.
Um kvöldið klæddist hún grænum toppi með gylltum reimum að framan og buxum með sebramynstri sem virðast vera úr vor- og sumarlínu Roberto Cavalli fyrir árið 2027.
Síðasta myndin sýnir rauða afmælistertu á tveimur hæðum, skreytta hvítum og gylltum kertum og tölunni 30.
„Systir mín er þrítug!“
Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs hélt Bieber upp á afmælið á Bahamaeyjum og voru systurnar Kylie og Kendall Jenner með í för. Sama dag og Bieber birti afmælismyndirnar deildi Kylie myndum af sér og Kendall þar sem þær sitja saman um borð í snekkju.
Báðar sendu þær afmælisbarninu kveðju á Instagram. Kylie birti gamla mynd þar sem þær Hailey haldast í hendur og sagðist alltaf myndu elska hana. Kendall valdi svarthvíta mynd af sér og Hailey dansandi í skæðadrífu af pappírsskrauti.
„Systir mín er þrítug!“ skrifaði hún.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/53/1695378.jpg)
