Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar Jökull ÞH299 sökk
Þrír fórust og fjórtán var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskip sökk um 60 sjómílur austur af landinu í gær. Björgunaraðgerðir á slysstað voru umfangsmiklar. Auk þyrlu Landhelgisgæslunnar tóku þátt í aðgerðunum áhöfnin á eftirlitsflugvélinni TF-SIF, sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fjöldi fiskiskipa.
Landhelgisgæslan greinir frá í tilkynningu.
Jökull. Mynd: Facebook-síða
Sjá einnig: Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Björgunaraðgerðum á sjó lokið - Allir komnir um borð í þyrluna
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Egilsstaðaflugvelli laust fyrir miðnætti og þeir sem á þurftu að halda fengu aðhlynningu á heilsugæslunni á Egilsstöðum.
Aðgerðir þyrlusveitarinnar á vettvangi stóðu yfir í um tvær klukkustundir við mjög krefjandi aðstæður og voru varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í stöðugum samskiptum við áhöfn þyrlunnar.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarboð frá skipstjóra fiskiskipsins laust eftir klukkan 17:00 um að leki væri kominn að skipinu. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar lýsti skipstjórinn yfir neyðarástandi og upplýsti stjórnstöðina að skipverjar væru að yfirgefa skipið.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang laust eftir 20:00 og klukkan 21:15 kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang.
Hluti áhafnar fiskiskipsins var fluttur til Reykjavíkur í nótt með eftirlitsflugvélinni TF-SIF og flugvél Norlandair.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗