„Leið eins og hjartað í mér væri rifið í tætlur“

Maður horfir á sjónvarp sem sýnir fréttaútsendingu í Tókýó þar sem greint er frá því að eiginkona japansks blaðamanns, sem er í haldi í Rússlandi, hafi birt bréf þar sem hún kallar eftir því að hann verði látinn laus sem fyrst. AFP

Eiginkona japansks blaðamanns sem er í haldi í Rússlandi segir fjölskylduna „fasta í sorg“ og grátbiður um að hann komist heill heim, á meðan foreldrar hans óttast að þau muni aldrei sjá son sinn aftur.

Yfirvöld í Rússlandi handtóku blaðamanninn Yuki Imai, fréttamann dagblaðsins Hokkaido Shimbun, á eyjunni Sakhalín í Austurlöndum fjær í október, sakaðan um njósnir.

Föst í sorg

„Frá þeim degi hefur fjölskylda okkar verið föst í sorg,“ sagði Nozomi Imai í yfirlýsingu og bætti við að henni hefði liðið eins og „hjartað væri rifið úr henni“ þegar hún sá myndefni af því þegar eiginmaður hennar var færður á brott.

Handtaka fréttamannsins hefur átt sinn þátt í því að samskipti Japans og Rússlands hafa náð nýjum lægðum.

Nozomi sagði að dagurinn sem eiginmaður hennar var handtekinn, 13. október, hefði verið síðasti dagur tveggja ára starfstíma hans þar og að hann hefði verið á leið heim til að sameinast fjölskyldu sinni, þar á meðal dóttur þeirra sem er tæplega tveggja ára.

„Hann hafði hlakkað svo mikið til að koma heim. Á meðan hann starfaði þar fæddist dóttir okkar,“ sagði Nozomi. „Gerið það – gerið það, skilið þessum dýrmæta pabba aftur til litlu dóttur sinnar.“

Nozomi sagðist hafa fundið á sér að eitthvað væri að daginn sem hann var handtekinn, þar sem ekkert heyrðist frá eiginmanni hennar og ekki náðist í hann.

Gat varla andað

„Ég bað í sífellu og sagði við sjálfa mig: „Hann hlýtur að vera kominn um borð í flugvélina.“ Svo bárust fréttirnar af því að hann hefði verið handtekinn,“ sagði hún.

„Ég sá myndefnið af því þegar eiginmaður minn var færður á brott. Ég gat varla andað. Mér leið eins og hjartað í mér væri rifið í tætlur,“ sagði hún.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab