Heildsöluverð fryst í 8 mánuði
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum til smásala helst óbreytt í átta mánuði samkvæmt ákvörðun verðlagsnefndar búvara.
Lágmarksverð á mjólk til bænda hækkar hins vegar um 1,39% samkvæmt ákvörðuninni. Tryggvi Þór Herbertsson formaður nefndarinnar segir að iðnaðurinn taki hækkun mjólkurverðs til bænda á sig, enda sé hann talinn ráða við það.
Tryggvi Þór segir nefndina ekki ráða því hvort verslanir hækki verð til neytenda, en ef það hækki séu það búðirnar sem beri ábyrgð á því, þrátt fyrir að iðnaðurinn taki hækkunina til bænda á sig. „Nú er um að gera að fylgjast með búðunum og sjá hvort þær hækki,“ segir hann.
Nánar má lesa um málið á bls.2 í Morgunblaðinu í dag
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/55/1695545.jpg)