Úlfar ekki metinn í hópi hinna hæfustu í embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu - Kallar eftir rökstuðningi

Ragna Gestsdóttir

Ragna Gestsdóttir

Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 07:19

Úlfar Lúðvíksson Mynd: Skjáskot RÚV

Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, er ekki metinn í hópi hæfustu umsækjenda um embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Morgunblaðið greinir frá.

Úlfar telur hæfnisnefndina vanmeta áratuga reynslu sína og kallar eftir rökstuðningi hvers vegna hann er ekki metinn meðal þeirra hæfustu.

Sex sóttu um og fjórir voru boðaðir í viðtal. Það er samdóma álit nefndarinnar að Margrét Kristín Pálsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, og María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, séu hæfastar til að gegna embættinu. Dómsmálaráðuneytið greindi frá því 23. nóvember að nefndin hefði skilað umsögn sinni og að þær væru metnar hæfastar.

Úlfar er í engum einstökum hæfnisþætti metinn framar öllum öðrum umsækjendum. Úlfar vill fá skýringar á því hvernig nefndin bar saman mannaforráð, rekstrarumfang og árangur umsækjenda. 

Nefndina skipuðu Sverrir Briem, ráðgjafi hjá Hagvangi og formaður nefndarinnar, Anna Tryggvadóttir, skrifstofustjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu, og Brynhildur Þorgeirsdóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu. Í drögunum eru störf nefndarmannanna tilgreind en þar er ekki gerð grein fyrir þekkingu þeirra á starfsemi lögreglu. Úlfar óskar jafnframt eftir upplýsingum um hvaða þekkingu nefndarmenn hafi haft á starfsemi og stjórnun lögregluembætta. 

Nefndin segir umsóknargögn Úlfars hafa verið „í raun ófullnægjandi“. Hann skilaði ekki kynningarbréfi sem óskað var eftir í auglýsingunni og að mati nefndarinnar voru upplýsingar um fyrri störf og menntun mjög takmarkaðar. Hún tekur einnig fram að hann hafi stuðst við handskrifaðar glósur í kynningu sinni. Úlfar bendir á að engin krafa hafi verið gerð um glærur og spyr hvort form kynningarinnar hafi haft áhrif á niðurstöðuna.

Í Morgunblaðinu í dag er farið ítarlega yfir dröf hæfnisnefndar.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab