Sterling sleppur við fangelsisvist eftir að hafa ekið Lamborghini undir áhrifum
Raheem Sterling, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi eftir að hafa ekið stórhættulega og verið með hláturgas í fórum sínum.
Sterling, sem er 31 árs, var handtekinn í maí eftir að hafa ekið Lamborghini-bifreið sinni með hættulegum hætti á hraðbrautum í Englandi.
Ökumenn tilkynntu lögreglu að Sterling hefði sveigt ítrekað á milli akreina, bremsað skyndilega og verið með blöðru í munninum. Hann lenti síðar í árekstri.
Myndskeið úr búkmyndavél lögreglumanns sýndi Sterling með hylki af hláturgasi og blöðru í fanginu eftir atvikið.
Sterling játaði hættulegan akstur, vörslu hláturgass og að hafa neitað að gefa sýni við rannsókn málsins.
Hann var dæmdur í tólf mánaða fangelsi, skilorðsbundið í átján mánuði, og sviptur ökuréttindum í tvö ár. Þá þarf hann að sinna 100 klukkustundum í samfélagsþjónustu.
Sterling fór í tólf daga meðferð vegna fíknivanda í júní og taldi dómarinn að hann hefði sýnt raunverulegan vilja til breytinga.
Sterling er nú án félags en lék áður með Liverpool, Manchester City og Chelsea.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗