Fór í hart til að fá fundargerð sem aðgengileg var á netinu afhenta á pappír
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur staðfest þá niðurstöðu Herjólfs o.hf. að neita að afhenda manni fundargerð stjórnar félagsins á pappír, með vísan til þess að hún væri aðgengileg á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.
Krafðist maðurinn þess í kærunni að félaginu yrði gert að afhenda honum fundargerðina úprentaða eða láta honum í té aðstöðu til að prenta fundargerðina út sjálfur.
Tjáði Herjólfur o.hf. nefndinni að talið hafi verið nægja að benda manninum á þá vefslóð þar sem nálgast mætti fundargerðir stjórnar félagsins.
Í niðurstöðu úrskrurðarnefndar um upplýsingamál segir að í upplýsingalögum komi fram að þegar þegar beiðni um aðgang að gögnum sé afgreidd með vísan til þess að umbeðnar upplýsingar séu þegar aðgengilegar almenningi, og án þess að umbeðin gögn séu afhent, skuli tilgreina nákvæmlega hvar og með hvaða hætti upplýsingarnar séu aðgengilegar.
Veita skuli aðgang að gögnum á því formi eða sniði og á þeim tungumálum sem þau séu varðveitt á, nema þau séu þegar aðgengileg almenningi. Séu gögn eingöngu varðveitt á rafrænu formi geti aðili valið á milli þess að fá þau á því formi eða útprentuð á pappír. Í máli þessu komi því til álita hvort 2. málsliður 1. málsgreinar 18. greinar laganna leiði til þess að aðili hafi val um form umbeðinna gagna þegar þau séu þegar aðgengileg almenningi.
Nóg
Í athugasemdum við frumvarp það er varð að núgildandi upplýsingalögum segi að séu upplýsingar þegar aðgengilegar almenningi, til dæmis á vef stjórnvalds eða á annarri vefslóð, sé almennt fullnægjandi að vísa á upplýsingarnar þar.
Með hliðsjón af þessu hafi áðurnefndur málsliður laganna ekki verið túlkaður á þá leið að ákvæðið leggi skyldu á stjórnvöld að afhenda gögn á því formi sem aðili óski eftir þegar þau séu þegar aðgengileg almenningi. Herjólfi o.hf. hafi því verið heimilt að afgreiða beiðni mannsins um aðgang að umbeðnum upplýsingum með því að gefa upp vefslóð á vef Vestmannaeyjabæjar með fundargerðum Herjólfs.
Þar sem umbeðin gögn séu þegar aðgengileg almenningi og Herjólfur hafi með fullnægjandi hætti bent manninum á hvar þau eru að finna verði afgreiðsla Herjólfs á beiðni mannsins, um að fá fundargerð stjórnar félagsins afhenta á pappír, staðfest.
.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗