Humarpasta Diddúar sló matarklúbbinn út af laginu

Humarpasta Diddúar vakti mikla lukku þegar matarklúbburinn hennar kom saman.

Humarpasta Diddúar vakti mikla lukku þegar matarklúbburinn hennar kom saman. Ljósmynd/Aðsend

Humar, saffran og hvítvín gefa tóninn í þessu girnilega pasta sem söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, betur þekkt sem Diddú, bar fram þegar matarklúbburinn hennar kom saman.

Albert Eiríksson segir frá kvöldinu á uppskriftasíðu sinni, Albert eldar, og fer fögrum orðum um matargerð Diddúar. Rétturinn hafi verið bæði glæsilegur og heimilislegur og hefði auðveldlega átt heima á matseðli á góðum veitingastað.

„Diddú býr yfir þeim töfrum sem gera allt sem hún kemur að bæði fallegra og bragðbetra,“ skrifar Albert og segir humarpastað hafa slegið matarklúbbinn algjörlega út af laginu. 

Hér fær humarinn félagsskap fennels, kapers og sítrónuólífa í ríkulegri sósu með rjóma og humarsoði. Réttur sem gefur tilefni til að leggja fallega á borð og bjóða góðum vinum í mat.

Humarpasta frá Diddú

Saffran, hvítvín og humarsoð gefa rjómalagaðri sósunni bragð, en kapers og sítrónuólífur setja punktinn yfir i-ið. Ljósmynd/Aðsend

  • 400 g gott pasta
  • 600 g heilir humrar
  • 4 hvítlauksrif
  • 1 msk. kapers
  • 10 sítrónuólífur (skornar smátt)
  • 1 sítróna
  • 3 fennel (smátt saxað)
  • ½ púrra
  • 2 skalottlaukar
  • 1 gulrót
  • 2 msk. smjör
  • Ólífuolía
  • 1/2 g saffran
  • 3 anísstjörnur (fínt malaðar)
  • 3 bollar gott humarsoð
  • 300 ml hvítvín
  • 200 ml matreiðslurjómi

Humarsoð

  • Skeljarnar af humrinum
  • Gulrót
  • Skalottlaukurinn
  • Púrran
  • Hvítlaukurinn
  • 1 msk. tómatpuré
  • Saffran
  • Anís
  • Hvítvín
  • Rjóminn

Aðferð

  1. Allt grænmetið gyllt í smjörinu og olíu.
  2. Skeljunum bætt út í.
  3. Kryddinu dreift yfir.
  4. Vökvanum bætt út í og soðið í dágóða stund við vægan hita.
  5. Skeljarnar veiddar upp úr.
  6. Gumsið og vökvinn soðin ögn niður.
  7. Smakkað til (má bæta chili út í, ef vill).
  8. Hreinsaður humarinn, ásamt kapers og ólífum, settur út í gumsið og látið malla á meðan pastað er að sjóða í u.þ.b. 8–10 mín.
  9. Láta vatnið renna af pastanu sem á að vera al dente.
  10. Pastað sett á disk, humarsósan yfir, skreytt að vild (steinselja, saffran o.s.frv.).

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅