Gæti farið til spænska stórliðsins
Spænska knattspyrnufélagið Barcelona hefur áhuga á að fá argentínska landsliðsmanninn Lisandro Martinez, miðvörð Manchester United, til liðsins í janúar.
Samkvæmt spænska miðlinum Sport er Argentínumaðurinn einn þeirra leikmanna sem Deco, íþróttastjóri Barcelona, hefur augastað á.
Meiðslavandræði hafa hrjáð miðvarðastöðu liðsins en Eric Garcia, Jules Koundé, Andreas Christensen og Pau Cubarsí hafa allir glímt við meiðsli.
Laurie Whitwell, blaðamaður The Athletic sem fylgist náið með Manchester United, segir áhuga Barcelona raunverulegan. Kaupin séu þó háð því að félagið geti fengið Martinez á hagstæðu verði vegna þröngs fjárhagsramma og reglna um fjárhagslegan stöðugleika.
Martinez er 28 ára og samningur hans við United gildir til sumarsins 2027, með ákvæði um framlengingu um eitt ár.
Framtíð hans hjá félaginu er óviss og sala í janúarglugganum gæti hentað báðum aðilum en samningur hans rennur út næsta sumar.
Martínez hefur sætt gagnrýni fyrir frammistöðu sína í vetur og ummæli hans þar sem hann gagnrýndi stjórnendur félagsins eftir leik gegn Atlético Madrid í Meistaradeildinni vöktu hörð viðbrögð.
Þá var hann rekinn af velli gegn Chelsea í fyrradag eftir að hafa fengið tvö gul spjöld á innan við fjórum mínútum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗