Varð þreytt á að vera „feita fyndna vinkonan“ - Léttist verulega með því að byrja að drekka 4 lítra af vatni daglega

Catherine Mare, 18 ára gömul stúlka frá Winburg í Suður-Afríku, rekur nú sitt eigið fyrirtæki sem snýr að þyngdarstjórnun, eftir að hafa lést um meira en 54 kíló á níu mánuðum.

Þegar Catherine var 14 ára gamall vó hún um 120 kíló og daglegt mataræði hennar samanstóð af súkkulaði, kartöfluflögum, KFC og McDonald's.

„Mér var í raun sama um hvað ég setti ofan í mig; ég var ánægð svo lengi sem mér leið vel.“ 

Hún leitaði í óhollan mat til að takast á við tilfinningar sínar eftir skilnað foreldra sinna þegar hún var sex ára. Síðar varð hún fyrir miklu einelti af hálfu skólafélaga vegna þyngdar sinnar, sem varð til þess að hún upplifði sig „verðlausa“. Þegar hún var 16 ára greindist hún með insúlínviðnám, efnaskiptaástand sem hefur áhrif á hvernig líkaminn vinnur úr sykri og getur leitt til sykursýki af tegund 2.

„Ég áttaði mig á því að ég var að borða svo mikinn sykur að ég varð veik af honum, og ég þurfti að breyta til,“ sagði hún.

Í febrúar 2025 hóf hún að kynna sér næringarfræði á Google og samfélagsmiðlum. Í kjölfarið setti hún saman eigin áætlun sem byggði á próteinríkri fæðu, reglulegum göngutúrum og mikilli vatnsdrykkju. Hún skipti gosdrykkjum út fyrir fjóra lítra af vatni á dag og gengur nú 10 kílómetra daglega, bæði á hlaupabretti og úti í nágrenninu.

Í nóvember 2025 vó hún um 65 kíló, þyngd sem hún hefur haldið síðan þá.

Hún fór einnig að fylgjast með hitaeiningainntöku og skammtastærðum, borðar minna af unnum matvælum og hefur hætt alfarið að neyta sykurs. Hún segir að þetta hafi orðið til þess að insúlínviðnám hennar hvarf.

Mataræði hennar samanstendur nú af kjúklingabringum, mögru nautakjöti, kalkúnakjöti, eggjum, túnfiski, avókadó, höfrum og sætum kartöflum. 

Catherine stofnaði fyrirtækið árið 2025, eftir að hún hætti í skóla 17 ára gömul. „Ég hélt aldrei að ég myndi nokkurn tímann léttast; ég hélt að ég yrði alltaf „feita fyndna vinkonan“,“ sagði hún.

Hjálpar það manni að léttast að drekka fjóra lítra af vatni á dag?

Vatnsdrykkja var aðeins einn hluti af þeim breytingum sem Catherine gerði á lífi sínu, og Harman Bajwa, næringarfræðingur hjá Nutrificient, bendir á að það skipti máli.

„Að drekka nægt vatn er mikilvægt fyrir góða heilsu, en að drekka fjóra lítra á dag er ekki í sjálfu sér aðferð til að léttast,“ segir hún.

Bajwa tekur fram að Catherine hafi einnig breytt matarvenjum sínum, fylgst með hitaeiningainntöku og byrjað að ganga reglulega. „Þessar breytingar skýra þyngdartapið hennar mun líklegar en magnið af vatni sem hún drakk.“

Bajwa varar einnig við því að of mikil vatnsdrykkja, sérstaklega á stuttum tíma, geti lækkað styrk natríums í blóðinu. Þetta ástand kallast blóðnatríumskortur (e. hyponatremia) og getur í alvarlegum tilfellum verið lífshættulegt.

Er hollt að léttast um 54 kg á níu mánuðum?

Bajwa reiknaði út að þyngdartap Catherine jafngildi um það bil 1,4 kg á viku.

Hún sagði að hægfara þyngdartap, upp á um það bil 0,5 til 0,9 kg á viku, þætti almennt raunhæfara og sjálfbærara fyrir flesta fullorðna, þótt þeir sem eru þyngri í upphafi gætu lést hraðar í fyrstu. Ef léttst er of hratt getur það aukið hættuna á næringarskorti, vöðvatapi og gallsteinum.

Þar sem hún þekkir ekki heilsufarssögu Catherine, né hvort hún hafi notið læknisfræðilegrar aðstoðar, sagðist Bajwa ekki geta fullyrt hvort svona hratt þyngdartap væri öruggt fyrir hana.

„Það sem hún gekk í gegnum ætti ekki að vera markmið fyrir aðra,“ sagði hún.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab