Þurfum að vinna í kvöld

Styrmir Snær Þrastarson.

Styrmir Snær Þrastarson. mbl.is/Karítas

Styrmir Snær Þrastarson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta, segir stemninguna í íslenska landsliðshópnum góða fyrir komandi verkefni.

Ísland mætir Bosníu í Laugardalshöll í kvöld klukkan 19:30 og Tyrklandi ytra á sunnudag í undankeppni HM 2027.

„Það er alltaf gaman að koma heim og spila með landsliðinu. Mér finnst stemningin í liðinu vera mjög góð núna. Allir eru spenntir og það er gaman að hittast,“ sagði Styrmir.

Ísland átti erfitt uppdráttar gegn Tyrklandi í síðasta landsleikjaglugga og tapaði með 37 stiga mun í Laugardalshöll. 

„Það var náttúrulega erfitt að spila við Tyrkina á þessum tíma þar sem þeir fengu að vera með alla þessa leikmenn. Við hittum ekki á okkar dag og þeir hittu úr öllu. Stundum er það bara þannig,“ sagði hann.

Styrmir hefur verið að festa sig betur í sessi innan landsliðsins og sagði hlutverk sitt fara sífellt stækkandi. Styrmir var einn af ljósu punktunum í íslenska liðinu gegn Tyrklandi. 

„Ég held áfram að reyna að bæta mig, sinna litlu hlutunum vel og tek því hlutverki sem mér er falið hverju sinni.“

Sterkir á heimavelli

Styrmir telur íslenska liðið eiga góða möguleika gegn Bosníu í kvöld, ekki síst á heimavelli. Hann kvaðst ekki þekkja mikið til bosníska liðsins en hlakkar til að takast á við verkefnið.

„Við tökum einn leiki í einu og vitum að við erum komnir á síðasta séns til að halda HM-draumnum á lífi. Við þurfum að byrja á því að vinna Bosníu og halda svo áfram," sagði hann.

„Við þurfum að spila okkar leik og vera fastir fyrir. Þeir eru stórir og sterkir, þannig að við þurfum að setja kraft í þetta og spila hratt. Sérstaklega þurfum við að ná höllinni með okkur. Það er alltaf lykilatriði,“ sagði Styrmir.

Líkar vel í Rúmeníu

Styrmir leikur nú með Rapid Búkarest í Rúmeníu en hann gekk í raðir liðsins í sumar.

„Þetta er allt öðruvísi en maður er vanur, önnur menning og körfuboltinn kom mér á óvart. Þetta er sterkt deild og mörg lið frá Rúmeníu sem taka þátt í Evrópukeppni, þannig að það er mjög gaman og góð stemning.

Ég er mjög sáttur við breytinguna og er í stóru hlutverki. Það gengur bara vel,“ sagði hann að lokum í samtali við mbl.is.

Nánar er fjallað um leik Íslands og Bosníu í kvöld á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab