Tekur Mette á orðinu og leggur til bann við slæðum

Frá þingsalnum í Kristjánsborgarhöll.

Frá þingsalnum í Kristjánsborgarhöll. AFP

Danski þjóðarflokkurinn hyggst leggja fram tillögur um bann við höfuðslæðum múslima í grunnskólum allra þeirra sveitarfélaga þar sem flokkurinn á fulltrúa í sveitarstjórn.

Frá þessu greindi Morten Messerschmidt, formaður flokksins, í samtali við fréttamenn að loknum fyrirspurnatíma í danska þinginu á þriðjudag.

Vísaði hann til ummæla Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og leiðtoga danskra jafnaðarmanna, í síðustu viku, þar sem hún sagði að höfuðslæður múslima væru tákn um kúgun kvenna. Sagðist hann vilja taka hana á orðinu.

Flokkurinn á fulltrúa í sveitarstjórnum 82 af 98 sveitarfélögum landsins.

Með því að leggja fram tillögurnar á næstu dögum og vikum hyggst Messerschmidt láta reyna á hvort sveitarstjórnarmenn danskra jafnaðarmanna séu sama sinnis og formaður flokksins.

Mette: Slæðan tákn um kúgun

Eins og fjallað var um á mbl.is á þriðjudag hefur Frederiksen lýst sig andvíga fjölmenningarsamfélagi þar sem ólíkir menningarheimar eru settir á sama stall. Hún vill að Danmörk verði áfram kristið land og að dönsk menning verði áfram ríkjandi í landinu.

Í viðtali við Jyllands-Posten í síðustu viku lýsti Frederiksen jafnframt afstöðu sinni til höfuðslæðna múslima með afdráttarlausum hætti.

Átti hún þar ekki eingöngu við búrkur og nikab-slæður, sem hylja andlit kvenna að hluta eða öllu leyti, heldur einnig hijab-slæðuna sem hylur hárið en skilur andlitið eftir bert. Sú síðastnefnda er algengust í Danmörku.

„Ég hef ekkert jákvætt að segja um höfuðslæður múslima. Enga þeirra,“ sagði forsætisráðherrann.

„Slæðan er í mínum augum tákn um kúgun.“

Reiðubúin að ræða bann

Frederiksen kvaðst reiðubúin að ræða bann við notkun höfuðslæðna í grunnskólum landsins en setti þann fyrirvara að ekki væri víst að slíkt bann samræmdist ákvæðum dönsku stjórnarskrárinnar.

Troels Lund Poulsen, formaður Venstre, hafði nokkrum dögum áður kallað eftir umræðu um slæðubann í grunnskólum á landsfundi flokksins.

Sagði hann það ekki samrýmast viðhorfum til jafnréttis kynjanna í Danmörku nútímans að jafnvel yngstu stúlkurnar í grunnskólum væru þvingaðar til að bera höfuðslæður.

Ekki ríkir einhugur um málið innan ríkisstjórnar Frederiksen. Sósíalíski þjóðarflokkurinn, sem á aðild að ríkisstjórninni, hefur lýst sig andvígan slíku banni.

Tillaga tekin fyrir í Kaupmannahöfn

Danski þjóðarflokkurinn og Venstre hafa þegar lagt fram sameiginlega tillögu í borgarstjórn Kaupmannahafnar um að kannaðir verði möguleikar á því að banna trúarlegar höfuðslæður meðal nemenda á yngsta stigi grunnskóla borgarinnar.

Tillagan verður tekin fyrir á fundi borgarstjórnar í dag.

Í greinargerð með tillögunni segir að trúfrelsi sé grundvallargildi í augum flutningsmanna hennar en jafnframt beri að standa vörð um frelsi barna þegar trúarleg viðmið takmarki það.

Stúlkur eigi ekki að þurfa að hylja hár sitt til að uppfylla tilteknar hugmyndir um siðprýði. Þær eigi að fá að vera börn og taka sjálfar afstöðu til trúarbragða eftir því sem þær eldast.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab