Jackie var aðeins 16 ára þegar hún var myrt – Morðgátan leyst 58 árum síðar

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 06:30

Lögregla upplýsti um framvindu mála á blaðamannafundi á dögunum.

Kanadíska lögreglan telur sig loks hafa upplýst morðið á hinni 16 ára Jacqueline „Jackie“ Dunleavy sem fannst látin í borginni London í Ontario í Kanada árið 1968. Málið hafði verið óupplýst í 58 ár.

Með hjálp nýjustu DNA-rannsóknartækni tókst lögreglu að bera kennsl á manninn sem talinn er hafa myrt Jackie. Sá hét Michael Joseph Moore og var 25 ára þegar morðið var framið. Hann lést árið 2018 og verður því ekki látinn svara til saka.

CBS News greinir frá þessu.

Jackie sást síðast á lífi þegar hún yfirgaf verslunina þar sem hún starfaði þann 9. janúar 1968. Innan við tveimur klukkustundum eftir að vakt hennar lauk fannst lík hennar á skólalóð í nokkurra kílómetra fjarlægð.

Í ljós kom að Jackie hafði verið kyrkt auk þess sem hún var með áverka á höfði.

Átti allt lífið fram undan

Rannsókn lögreglu á sínum tíma skilaði ekki árangri en málið var ítrekað tekið til skoðunar næstu árin og áratugina.

Með erfðafræðilegum ættfræðirannsóknum tókst sérfræðingum á rannsóknarstofu í Texas að bera kennsl á fjarskylda ættingja mannsins sem DNA-sýni úr rannsókn málsins var rakið til. Þær upplýsingar leiddu lögreglu að Moore sem hafði skömmu fyrir morðið flutt til London frá Írlandi.

Lögregla aflaði frekari sönnunargagna og DNA-sýna til samanburðar og segir að Moore hefði verið handtekinn og ákærður fyrir morðið væri hann enn á lífi. Sönnunargögnin væru það sterk.

Thai Truong, lögreglustjóri í London, minntist Jackie á blaðamannafundi í vikunni. Faðir hennar hafði starfað hjá lögreglunni í borginni.

„Hún var dóttir, systir, vinkona og ung stúlka sem átti allt lífið fram undan,“ sagði hann.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab