Á von á barni með 27 árum yngri eiginkonu sinni

Dane Cook og Kelsi Taylor á viðburði árið 2024. Hjónin eiga nú von á sínu fyrsta barni. AFP/Michael Tran

Grínistinn Dane Cook og líkamsræktarþjálfarinn Kelsi Taylor eiga von á sínu fyrsta barni. Hjónin greindu frá því á Instagram í gær.

„Við höfum hlakkað svo til að segja ykkur frá þessu!“ skrifuðu þau með þremur svarthvítum myndum. Á einni þeirra halda þau á sónarmyndum og brosa hvort til annars.

Giftu sig á Havaí

Taylor var átján ára þegar þau Cook tóku saman árið 2017. Þau trúlofuðu sig sumarið 2022 og sagði Cook síðar í samtali við fjölmiðla vestanhafs að þau hefðu búist við gagnrýni vegna aldursmunarins. Í september árið eftir gengu þau í hjónaband á Havaí að viðstöddum tuttugu gestum.

Cook ræddi um barneignir í viðtali við fjölmiðla í nóvember 2022 og sagðist hlakka til að verða faðir. „Systir hennar var að eignast annað barnið sitt og mér finnst yndislegt að sjá hana með barninu,“ sagði hann um Taylor.


Page Six

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab