Þorsteinn Pálsson skrifar: Bláskógaþögnin um prinsippin sem máli skipta
Bláskógar eru kraftmikil byggð í uppsveitum Árnessýslu. Þar hefur orðið umbylting í atvinnuháttum. Öflug ferðaþjónusta er orðin uppistaða og ívaf þar sem hefðbundinn landbúnaður var áður ríkjandi og er enn stundaður af myndarskap.
Þeir sem kjörnir hafa verið til forystu fyrir sveitarmálefnum í þessari blómlegu byggð hafa síðustu vikur látið til sín taka í umræðum um ríkisfjármál. Eftir því hefur verið tekið.
Í fótspor þeirra sem í fyrra urðu að gjalti
Umræðan minnir þó um margt á framgöngu nokkurra sveitarfélaga í fyrra, sem staðhæfðu að hagur þeirra myndi hrynja og byggð jafnvel leggjast af ef sjávarútvegsfyrirtækin greiddu lítið eitt hærra auðlindagjald.
Ári seinna þakka talsmenn þessara sveitarfélaga fyrir hvern þann dag, sem guð gefur og fjölmiðlar spyrja ekki hvers vegna hrakspár þeirra rættust ekki. Þá yrðu þeir að gjalti. Ugglaust gjalda Bláskógamenn brests á trúverðugleika, sem þarna varð.
Eigi að síður gefa ágreiningsefnin tilefni til að ræða málefnalega ýmsar prinsipp spurningar varðandi hlutdeild ríkissjóðs í fjárfestingum í þágu fyrirtækja í ferðaþjónustu og hvernig afla á fjár til þeirra framkvæmda. Um þau efni ríkir þó þögnin ein á fundum sveitarstjórnar Bláskóga. Eftir því er líka tekið.
Lögmálið um að afla tekna fyrir útgjöldum
Þótt ræða megi hvort ríkissjóður eigi að kosta uppbyggingu á ferðamannastöðum, sem einkafyrirtæki hagnýta sér, er ekki verið að deila um þá spurningu hér. Um hitt er deilt hvernig afla á fjármunanna og hvort baðlón eigi að njóta undanþágu frá almennum reglum skattalaga.
Ég tek eftir því að sveitarstjórnarmennirnir bera lof á þá þingmenn sína sem gefa þeim fyrirheit um fjármagn úr ríkissjóði til þessara verkefni og senda síðan reikninginn á næstu kynslóð skattgreiðenda. Aftur á móti lýsa þeir hinum þingmönnum sínum, sem telja að fjáröflun sé forsenda fjárveitinga, eins og þeir séu óvinir sveitarinnar.
Að því leyti er þetta öfugsnúið tal að ég hef ekki heyrt sveitarstjórnarmennina lýsa þessu viðhorfi þegar sá hluti opinberra fjármála er til umræðu, sem þeim sjálfum hefur verið trúað fyrir. Af hverju ætti eitthvað annað lögmál að gilda um ríkisfjármálin en sveitarstjórnarfjármálin?
Notendagjöld eða tekjuskattur
Hitt prinsippið snýst um þá spurningu hvort afla eigi fjár til útgjalda af þessu tagi með almennum sköttum, sem allir greiða, eða hvort þeir sem þjónustunnar njóta eigi að borga brúsann.
Í haust birtust gagnstæð viðhorf um þetta álitaefni í fréttatíma sjónvarpsins. Sveitarstjórinn í Bláskógum taldi það illa ígrundað hjá ríkisstjórninni að leggja á sérstakt notendagjald. En fjöldi erlendra ferðamanna í Bláskógabyggð svaraði á hinn bóginn að það væri sjálfsagt.
Satt best að segja er ég ekki viss um að svör ferðamannanna hafi verið verr ígrunduð en sveitarstjórans.
Að standa á gati eða skila auðu
Svo er annað: Sveitarstjórn Bláskóga gerir til að mynda ekki athugasemdir við það að í fjárlagafrumvarpinu er sem fyrr gert ráð fyrir því að íbúar sveitarinnar greiði komugjöld á Heilsugæslunni.
Ástæðan er einföld: Krafa um slíka breytingu kallar á hækkun tekjuskatts. Sveitarstjórnin treystir sér skiljanlega ekki að leggja það til.
En vill hún hækka tekjuskattinn í stað komugjalda á ferðamannastaði? Eða er hún bara að spila með stjórnarandstöðunni í þeim leik hennar að skrifa reikninginn á framtíðina? Þegar þannig er spurt stendur sveitarstjórnin á gati eða skilar í besta falli auðu.
Móralskar spurningar sem ekki er svarað
Prinsipp spurningin um virðisaukaskattinn á gesti baðlóna snýst bæði um móral og hitt hvort tekjuskattur sé réttlætanlegri en neysluskattur í þessu tilviki.
Baðlón eru mjög dýr afþreying og alls ekki á allra færi að kaupa hana. Afkoma baðlónafyrirtækja sýnir að starfsemin þarf ekki opinberan stuðning með skattaundanþágum. Fyrirtækin hafa heldur ekki sýnt fram á að hækkun úr tíu þúsund krónum í ellefu þúsund muni hafa teljandi áhrif á eftirspurn.
Er þá móralskt rétt að veita þeim sem hafa efni á þessari afþreyingu fremur afslátt frá virðisaukaskatti en til að mynda fátækum fjölskyldum til fatakaupa eða börnum, sem kaupa bíómiða. Hvers vegna ræðir sveitarstjórnin ekki spurningar af þessu tagi?
Er betra að halda undanþágunni og hækka tekjuskattinn í staðinn? Það er líka hægt að færa peninga frá sjúkrahúsum eða skólum til ferðamannauppbyggingar. Svo er alltaf unnt að skrifa útgjöldin á framtíðina eins og stjórnarandstöðuþingmenn Bláskóga tala fyrir. Hvers vegna svarar sveitarstjórnin ekki þessum spurningum?
Bláskógaþögnin um sér íslenska ofurskattinn
Stærsti samkeppnisvandi ferðaþjónustunnar í Bláskógum og reyndar landinu öllu felst í því að sá hluti hennar, sem ekki starfar í vaxtaumhverfi evrunnar, þarf að greiða þrefalt hærri raunvexti. Þetta er óhjákvæmilegur kostnaður við gjaldmiðil sem ekki er samkeppnisfær.
Raunvaxtamunurinn milli krónu og evru virkar í reynd sem sér íslenskur ofurskattur. Hann er ekki tímabundinn heldur viðvarandi óháð því hvers kyns ríkisstjórnir við búum við hverju sinni. Reynslan er þar ólygnust.
Hvers vegna ræðir sveitarstjórn Bláskóga ekki afleiðingar þessarar sér íslensku skattheimtu? Af hverju stóð sveitarstjórnin með þeim í liði síðasta sumar sem börðust fyrir því að ferðaþjónustan í Bláskógum greiddi þennan ofurskatt um alla framtíð?
Öflugustu sveitarfélögin á landsbyggðinni eru þau sem hafa fyrirtæki innan sinna vébanda, sem taka lán í evrum.
Til þess að taka ekki djúpt í árinni er niðurstaðan þessi: Sveitarstjórn Bláskóga hefur staðið jafn vel í ístaðinu með þátttöku sinni í ríkisfjármálaumræðunni nú eins og sjávarútvegssveitarfélögin í fyrra.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗