Valdabarátta EHF bitnaði á Bjarka Má

„Það voru alltaf þrjú þýsk lið í Meistaradeildinni en þetta var endalaus barátta alltaf á milli evrópska handknattleikssambandsins og þýsku deildarinnar um leikdaga,“ sagði handbolta- og landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson í Dagmálum.

Bjarki, sem er 36 ára gamall, gekk til liðs við franska stórliðið París SG í sumar eftir fjögur ár í herbúðum ungverska stórliðsins Veszprém þar sem hann varð fjórum sinnum meistari og þrívegis bikarmeistari.

Var mjög svekkjandi

Bjarki Már lék með Füchse Berlín frá 2015 til 2019 en liðið hafnaði í þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar, tímabilið 2017-13, en missti þrátt fyrir það af Meistaradeildarsæti.

„EHF vildi spila Meistaradeildarleikina um helgar sem þýska deildin var ekki tilbúin í,“ sagði Bjarki.

„Rhein-Neckar Löwen sendi einu sinni B-liðið sitt til að spila á móti Kielce í Meistaradeildinni af því að þeir höfðu spilað deildarleik daginn áður og það endaði með því að EHF fór í fýlu út í þýsku deildina og tók eitt þýskt lið úr keppninni.

Þetta var sama ár og við enduðum í þriðja sætinu og þetta var því mjög svekkjandi. Ég er seinheppinn en á sama tíma heppinn, það hefur verið mikið „næstum því“ hjá mér og það situr oft meira í manni en titlarnir sem maður hefur unnið,“ sagði Bjarki meðal annars.

Viðtalið við Bjarka í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Bjarki Már Elísson.

Bjarki Már Elísson. mbl.is/Anton Brink

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab