Þjóðarhöll ehf. alls ókunnugt um fjárhagsstöðu ÍAV
Innlent | Morgunblaðið | 26.11.2026 | 5:50
Þjóðarhöll ehf. segist fyrst hafa fengið upplýsingar um tap Íslenskra aðalverktaka hf. árið 2025 og mögulega neikvæða eiginfjárstöðu félagsins þegar Morgunblaðið leitaði svara 12. nóvember.
Þá voru liðnar sex vikur frá því að Þjóðarhöll samdi við ÍAV um hönnun og byggingu hallarinnar fyrir 16,8 milljarða króna.
Í svari Þjóðarhallar við fyrirspurn blaðsins kemur fram að fjárhagslegt hæfi ÍAV hafi aðeins verið metið einu sinni, í forvali árið 2024. Matið byggðist á ársreikningum félagsins fyrir árin 2021 og 2022. Fjárhagsstaðan var hvorki könnuð að nýju áður en tilkynnt var val á tilboði ÍAV 8. júní né áður en verksamningurinn var undirritaður 30. september.
Þegar samningur um framkvæmdina var undirritaður milli Þjóðarhallar og ÍAV lágu því aðeins til grundvallar fjögurra ára gamlar upplýsingar um fjárhag verktakans. Upplýsingar sem aflað hafði verið fyrir tveimur og hálfu ári. Samkvæmt nýbirtum árshlutareikningi ÍAV nam neikvætt eigið fé félagsins tæpum 2,9 milljörðum króna í lok júní. Þann dag hafði eigandi ÍAV gefið eftir 3,3 milljarða króna skuld félagsins, líkt og Morgunblaðið hefur fjallað um.
Þjóðarhöll segir að engar upplýsingar um skuldaniðurfellingar, hlutafjáraukningar eða önnur eiginfjárframlög hafi legið fyrir við samningsgerðina.
Nánar má lesa um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗