Andlát: Árni Bjarnason
Árni söng í rúm 60 ár með Karlakórnum Heimi og var um árabil elstur kórmanna, gjarnan nefndur elsti maður í Heimi. Hér er hann með tveimur ungum söngmönnum, Gisla Höskuldssyni og Sæþóri Má Hinrikssyni. Á þeim var 69 ára aldursmunur, Árni fæddur 1931 og þeir árið 2000. mbl.is/Björn Jóhann
Árni Bjarnason, bóndi á Uppsölum í Blönduhlíð í Skagafirði, lést 20. nóvember á HSN á Sauðárkróki, 95 ára að aldri. Árni söng með Karlakórnum Heimi fram á tíræðisaldur og bar lengi þann ágæta titil að vera elsti maður í Heimi.
Árni fæddist á Uppsölum 8. nóvember 1931 og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Bjarni Halldórsson og Sigurlaug Jónasdóttir. Árni tók gagnfræðapróf að Laugum í Þingeyjarsveit og lærði þar einnig smíðar. Hann tók ungur við búi foreldra sinna og sinnti búskap að Uppsölum þar til dóttir hans og tengdasonur tóku endanlega við árið 1998. Árni var lengi í hreppsnefnd Akrahrepps og hreppstjóri þar til það starf var lagt niður. Hann var fjallskilastjóri í 16 ár, var í sóknarnefnd Silfrastaðakirkju í rúm 20 ár og átti sæti í stjórn Kaupfélags Skagfirðinga í nokkur ár.
Árni hóf að syngja með Heimismönnum árið 1959 og var í kórnum í rúm 60 ár, þar af í stjórn kórsins í um 20 ár. Í viðtali í Morgunblaðinu árið 2021 sagðist Árni ekki vita hvort kórfélagar hefðu náð því að verða 90 ára á söngpöllunum. Taldi hann það þó líklegt, stofnfélagar Heimis hefðu sungið í áratugi, sumir fram í andlátið. Árni söng einnig í karlakórnum Feyki, Rökkurkórnum og kirkjukór Miklabæjarsóknar. Þegar mest lét gátu söngæfingar orðið fimm sinnum í viku.
Árni Bjarnason við líkanið sem hann smíðaði af sóknarkirkju sinni, Silfrastaðakirkju. Ljósmynd/Eyþór Árnason
Árni var mikill hagleikssmiður, en á efri árum eyddi hann mörgum stundum í bílskúrnum á Uppsölum að smíða burstabæi og líkön af fleiri mannvirkjum. Voru þeir gripir orðnir um 150 talsins. Eftirminnilegast er stórt líkan af Silfrastaðakirkju, sem er áttstrend og ekki auðveld smíði. Árni náði því að sjá fyrirmyndina koma aftur heim á sinn grunn á dögunum, eftir að hafa verið í viðgerð í nokkur ár á Sauðárkróki. Þá tók Árni þátt í því verkefni sl. sumar með Eyþóri, syni sínum og fleirum, að fara með útileguborð sem hann hafði smíðað upp að vegamótunum að minnismerkinu á Kili, um frændur þeirra, Reynistaðabræðurna Bjarna og Einar.
Eiginkona Árna var Sólveig Árnadóttir, f. 1925, d. 2015. Þau héldu stórt heimili þar sem oft var mikill gestagangur og margir áttu hjá þeim skjól. Börn þeirra eru Eyþór, f. 1954, Elín Sigurlaug, f. 1956, Drífa, f. 1959, og Anna Sólveig, f. 1962. Barnabörnin eru 12 talsins, langafabörnin 23 og eitt langalangafabarn.
Útför Árna fer fram frá Sauðárkrókskirkju 7. desember kl. 13.
Árni fór með fjölskyldu sinni og vinum að Kili í sumar þar sem útileguborð var sett niður við afleggjarann að minnismerki um Reynistaðabræður, Bjarna og Einar, sem voru frændur Árna og hans fólks. Efri röð f.v.: Árni Vigfússon, Rúnar Jónsson, Vigfús Þorsteinsson, Grímur Jónasson, Theodóra Reynisdóttir, Þorsteinn Vigfússon, Sigurður Berndsen og Sverrir Guðmundsson. Sitjandi f.v.: Sigurlaug Halldórsdóttir, Drífa Árnadóttir, Elín Sigurlaug Árnadóttir og smiðurinn Árni Bjarnason. Ljósmynd/Eyþór Árnason
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


