„Þetta var eignaupptaka“
Þegar Óskar Magnússon var 14 ára þurfti hann að láta allt sparifé sitt af hendi svo fjölskyldan gæti flutt inn í einbýlishús sem var í byggingu. Ekki hafði tekist að selja blokkaríbúðina sem fjölskyldan bjó í og brá faðir hans á það ráð að gera sparifé barnanna upptækt. Óskar ræðir þetta í hlaðvarpinu Marta María býður heim og segir að honum hafi ekki fundist þetta í lagi.
Faðir Óskars kom heim eitt kvöldið og bað um bankabækur barnanna. Óskar hafði safnaði 30.000 krónum og til að setja upphæðina í samhengi segir hann að reiðhjól hafi þá kostað um sjö þúsund krónur. Hann var því búinn að vinna sér inn andvirði nokkurra reiðhjóla.
„Ég fékk þetta aldrei til baka,“ segir Óskar.
Aðspurður hvort hann hafi sætt sig við það er svarið afdráttarlaust.
„Nei, nei, mér hefur aldrei fundist það í lagi.“
Alls ekki í lagi
Marta María spyr Óskar hvort hann hafi orðið kapítalisti á þessu augnabliki þá hefur hann bara eitt um þetta að segja:
„Þetta var eignaupptaka.“
Óskar segir að börn verði snemma meðvituð um eignarrétt. Það sjáist um leið og einhver reyni að taka af þeim dót sem þau eiga. Marta María segist tengja sterkt við þetta og játar að eignaréttur hennar sé sterkur og að hún sé mjög meðvituð um hvað sé hennar séreign og hvað ekki.
Fékk næði og fór að skrifa
Hvalamorð heitir nýjasta bók Óskars en hún fjallar um Stefán Bjarnason sem er lögmaður. Sagan gerist meðal annars í hvalstöðinni og er spennandi.
Marta María segist heyra rödd Óskars þegar hún les um Stefán. Henni finnst þeir líka eiga sitthvað sameiginlegt. Stefán er með gleraugu og ljósan makka og vill gjarnan vera vel til fara. Hann á sér líka veikleika sem kemur honum í vandræði.
„Hann er mjög veikur fyrir kvenfólki,“ segir Óskar og hlær þegar hann er spurður um Stefán Bjarnason sem tekur að hans sögn sjaldnast fyrsta skrefið en er samt kominn í fangið á fagurri konu áður en hann áttar sig á því hvað gerðist. Jafnvel konan sem hann býr með viðurkennir að hún hafi átt frumkvæðið að sambandi þeirra.
Óskari finnst sjálfsagt að hafa húmor í glæpasögum þótt alvarleg mál séu í gangi. Stundum kemur hann sjálfum sér á óvart meðan hann skrifar og hugsar:
„Ja, þetta er bara nokkuð gott.“
Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is og á öllum helstu hlaðvarpsveitum:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗