Gul viðvörun fyrir allt landið

Innlent | mbl | 26.11.2026 | 5:34

Þær fyrstu tóku gild á Austfjörðum klukkan 5 í morgun.

Þær fyrstu tóku gild á Austfjörðum klukkan 5 í morgun. Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er hvassviðri eða stormi á landinu í dag og hefur Veðurstofan gefið út gular viðvaranir fyrir allt landið. Þær fyrstu tóku gildi klukkan 5 í morgun á Austfjörðum.

Það gengur í suðaustan og austan 15-23 m/s eftir hádegi en vindur verður hægari vestanlands fram eftir degi. Það verður rigning með köflum, talsverð úrkoma á Suðaustur - og Austurlandi en léttir til norðanlands eftir hádegi. Hitinn verður á bilinu 2 til 10 stig.

Á morgun er spáð suðlægri átt,13-20 m/s með skúrum. Það dregur aðeins úr vindi eftir hádegi og það kólnar með éljum en bjart verður með köflum og úrkomulítið á Norður- og Norðausturlandi. Hitinn verður á bilinu 2 til 8 stig en það kólnar síðdegis, einkum inn til landsins.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab