Gul viðvörun fyrir allt landið
Innlent | mbl | 26.11.2026 | 5:34
Spáð er hvassviðri eða stormi á landinu í dag og hefur Veðurstofan gefið út gular viðvaranir fyrir allt landið. Þær fyrstu tóku gildi klukkan 5 í morgun á Austfjörðum.
Það gengur í suðaustan og austan 15-23 m/s eftir hádegi en vindur verður hægari vestanlands fram eftir degi. Það verður rigning með köflum, talsverð úrkoma á Suðaustur - og Austurlandi en léttir til norðanlands eftir hádegi. Hitinn verður á bilinu 2 til 10 stig.
Á morgun er spáð suðlægri átt,13-20 m/s með skúrum. Það dregur aðeins úr vindi eftir hádegi og það kólnar með éljum en bjart verður með köflum og úrkomulítið á Norður- og Norðausturlandi. Hitinn verður á bilinu 2 til 8 stig en það kólnar síðdegis, einkum inn til landsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗