Rændur og hótað með eggvopni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Eyþór

Lögreglan er með til rannsóknar rán í miðborginni í gærkvöld eða í nótt þar sem fjármunir voru teknir af einum og honum hótað með eggvopni.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.

Á 141 km hraða 

Lögreglustöð 3, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og í Breiðholti, stöðvaði ökumann við hraðaeftirlit. Sá reyndist aka á 141 km hraða á akbraut þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 km/klst. Fljótt vaknaði grunur um að ökumaður bifreiðarinnar væri undir áhrifum vímuefna, sem reyndist á rökum reistur. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð.

Lögreglan fékk tilkynningu um bifreið þar sem talið var að ökumaðurinn væri ölvaður. Bifreiðin fannst og var stöðvuð. Ökumaðurinn reyndist vera ölvaður. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöðina í hefðbundið ferli.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab