Sló met með sigurmarkinu á Anfield
Kai Havertz skoraði sigurmark Englandsmeistara Arsenal í 1:0-útisigri á Liverpool í níundu umferð ensku úrvalsdeildar karla á Anfield í gær.
Með markinu hefur Havertz nú skorað 46 mörk fyrir Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og er því orðinn markahæsti Þjóðverji í sögu deildarinnar.
Fyrir markið deildi hann metinu með Ilkay Gündogan sem skoraði 45 mörk fyrir Manchester City.
Havertz er 27 ára gamall og gekk í raðir Arsenal eftir þrjú ár hjá Chelsea sumarið 2023.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗