Sækja um skilnað eftir þriggja ára hjónaband
Maid-leikkonan Margaret Qualley og tónlistarmaðurinn Jack Antonoff hafa ákveðið að sækja um skilnað eftir þriggja ára samband. Stjörnurnar fóru hvort í sína áttina fyrr á þessu áru.
Bandaríski miðillinn People greinir frá því að þau hafi ákveðið að sækja sameiginlega um skilnað. „Þetta er sameiginleg ákvörðun,“ sagði heimildarmaður miðilsins.
„Þau bera mikla virðingu hvort fyrir öðru og elska hvort annað og þrátt rómantísku sambandi þeirra sé lokið munu þau halda áfram að vera vinir,“ sagði heimildarmaðurinn jafnframt.
Fréttir af sambandsslitum þeirra bárust í júlí. Fyrst heyrðust sögur um að Antonoff væri erfiður við eiginkonu sína en heimildarmaðurinn vill ekki kannast við það. „Það eru bara tveir aðilar í þessu sambandi,“ sagði heimildarmaðurinn.
Trúlofuðu sig eftir stutt samband
Fyrst sást til þeirra Qualley og Antonoff sumarið 2021. Þau trúlofuðu sig árið 2022 eftir stutt samband og gengu í hjónaband ári seinna. Á meðal gesta í brúðkaupinu voru söngkonan Taylor Swift, leikaraparið fyrrverandi Channing Tatum og Zoe Kravitz, söngkonan Lana Del Rey og að sjálfsögðu móðir brúðarinnar, leikkonan Andie Macdowell.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
