Skipbrotsmenn komnir undir læknishendur

Innlent | mbl | 26.11.2026 | 0:43

Svæfingarlæknum og svæfingarhjúkrunarfræðingum var flogið til Egilsstaða frá Reykjavík.

Svæfingarlæknum og svæfingarhjúkrunarfræðingum var flogið til Egilsstaða frá Reykjavík. mbl.is/Skúli Björn Gunnarsson

Skipverjar á Jökli SH eru komnir undir læknishendur. Engar upplýsingar hafa verið gefnar um líðan mannanna.

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að farið hafi verið með mennina á heilsugæsluna á Egilsstöðum til aðhlynningar.

Eins og fram kom á mbl.is fyrr í kvöld var svæfingarlæknum og svæfingarhjúkrunarfræðingum flogið til Egilsstaða frá Reykjavík. 

Öllum aðgerðum er lokið á Egilsstaðaflugvelli þar sem mikill viðbúnaður var. Fjórir sjúkrabílar voru á flugvellinum þegar þyrla Landhelgisgæslunnar lenti klukkan 23:45, auk þess sem fjöldi bíla frá Landsbjörg var á svæðinu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab