Tímalína: Umfangsmiklar björgunaraðgerðir að baki
Ekki er ljóst hvað varð til þess að skipið sökk. Mynd úr safni. mbl.is/RAX
Sautján manna áhöfn Jökuls ÞH, sem sökk síðdegis í dag, hefur verið flutt til lands um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan lenti á Egilsstöðum á tólfta tímanum í kvöld.
Ekki þykir unnt að svo stöddu að greina frá líðan skipverjanna.
Skipstjóri línu- og netaskipsins sendi út neyðarkall laust upp úr klukkan 17. Þá var skipið á Héraðsdjúpi, um 100 kílómetra austur af Glettingi.
Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu skipverja að fara í björgunargalla. Skömmu síðar fékk Gæslan þær upplýsingar að áhöfnin væri að yfirgefa skipið.
Skip héldu á vettvang úr þremur höfnum
Landhelgisgæslan kallaði þegar út þyrlusveit sína og áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð og sömuleiðis aðgerðastjórnir á Austurlandi og Norðurlandi eystra.
Öll skip úti fyrir Austurlandi voru beðin að halda á slysstað og björgunarskip Landsbjargar lögðu úr höfn frá Raufarhöfn, Vopnafirði og Neskaupstað.
Frá Raufarhöfn kom Gunnbjörg, frá Vopnafirði Sveinbjörn Sveinsson og frá Neskaupstað Hafbjörg. Um klukkan 19.30 voru að minnsta kosti fimm fiskiskip einnig á leið til aðstoðar.
Aðstæður voru erfiðar. Hvasst var úti á sjó og ölduhæðin um 8 til 10 metrar þegar skipið sökk að sögn veðurfræðings. Vindhraðinn var þá um 13 til 18 metrar á sekúndu.
Skipverjar náðu að festa sig saman
TF-SIF, sem búin er hitamyndavél og öðrum tæknikosti, kom á vettvang um klukkan 20.
Áhöfn flugvélarinnar gat því fylgst með úr lofti en til að ná mönnunum úr sjónum þurfti að bíða þess að skip eða þyrla kæmu á staðinn.
Skömmu fyrir klukkan 21 greindi mbl.is frá því að allir sautján skipverjarnir væru í sjónum.
Merki bærust frá neyðarsendum í björgunargöllum þeirra og að nokkrir skipverjanna hefðu náð að festa sig saman og væru með talstöð.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í samhæfingarstöð almannavarna. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Komu á vettvang upp úr kl. 21
Fiskiskip á leið til aðstoðar sigldu á 14 til 15 hnúta ferð. Sumum var beint norður fyrir slysstað þar sem talið var að skipverjana gæti rekið í þá átt.
Björgunarskipin sigldu á nær 20 hnúta ferð en voru enn lengra frá slysstað en fiskiskipin.
Laust upp úr klukkan 21 kom þyrla Landhelgisgæslunnar á vettvang og um svipað leyti komu fyrstu fiskiskipin að. Þá voru liðnar um fjórar klukkustundir frá neyðarkallinu.
Meðal skipanna sem komu á vettvang voru uppsjávarskip Brims, Svanur, og Harðbakur, togari Samherja.
Í tilkynningu sem mbl.is birti rétt fyrir klukkan 21.30 greindi Gæslan frá því að björgunaraðgerðir stæðu yfir.
Þrjátíu ára gamalt skip
Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996.
Skipið var 44 metra langt og hét áður Nanoq. Undir því nafni var það gert út til veiða við Grænland þar til GPG Seafood á Húsavík keypti það í desember 2020.
Gerði útgerðin skipið út frá Raufarhöfn og var það við grálúðuveiðar langt frá landi þegar neyðarástand skapaðist.
Ekki er ljóst hvað varð til þess að skipið sökk.
Aðeins ein þyrla til taks
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í samtali við mbl.is í samhæfingarstöð almannavarna að fjölmargir hefðu komið að aðgerðum í kvöld.
„Við ræstum út varðskipið Freyju. Þar er skipsáhöfn um borð. Það eru ábyggilega svona 50, 70 manns með flugdeildinni og þeim sem starfa í stjórnstöð og björgunarmiðstöðinni.“
Spurður hvort tekist hefði að laga hífingarbúnað um borð fyrir útkallið, sem greint var frá nýlega að væri bilaður, svaraði Georg:
„Já, sem betur fer var búið að leysa það mál en við vorum reyndar bara með eina þyrlu til taks.“
Kirkjan opnar dyr sínar
Halla Tómasdóttir forseti sagði hug sinn í kvöld hjá sjómönnunum og óskaði þess að allir kæmust þeir heilir heim.
Þá opnaði Húsavíkurkirkja dyr sínar.
Aðgerðum lokið á tólfta tímanum
Á meðan björgunaraðgerðir stóðu yfir greindi mbl.is frá því að tekist hefði að ná flestum um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Loks var hægt að greina frá því að áhöfnin hefði öll náðst um borð í þyrluna, og að aðgerðum væri lokið, um kl. 23.20.
Af aðstæðum öllum má ljóst vera að mikið hefur reynt á skipverjana í köldum og úfnum sjónum. Búast má við að hægt verði að greina frá líðan þeirra á morgun, fimmtudag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


