Tugir létust þegar olíutrukkur lenti á hliðinni
Í það minnsta 30 manns létu lífið þegar olíutrukkur lenti á hliðinni í Kaíró, höfuðborg Egyptalands.
Heilbrigðisráðuneytið þar í landi greinir frá.
Slysið átti sér stað í umferðarteppu á hraðbraut. Myndskeið sem AFP-fréttaveitan hefur sannreynt sýna heilmikinn eld á slysstaðnum og stórt olíuský sem steig af slysstað.
Egypskir miðlar segja að slysið hafi orðið þegar bíllinn reyndi að snúa við og valt á hliðina þegar hann breytti um stefnu.
Á myndskeiðum mátti sjá að fjöldi bíla hafði orðið illa úti í slysinu. Slökkviliðsmenn sáust á vettvangi að störfum.
Ýta virðist jafnframt hafa verið komin á staðinn til að ýta af hraðbrautinni bílabrakinu.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

