Mosfellsbæ var ekki heimilt að nýta vatnið án samþykkis
Niðurstaða Hæstaréttar var sú að vatnstakan væri ekki öðrum sameigendum bagalaus og að Mosfellsbæ hefði því ekki verið heimil hún án samþykkis sameigenda sinna, annaðhvort meirihluta þeirra eða allra. mbl.is/Kristinn Magnússon
Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að Mosfellsbæ hefði ekki verið heimilt að nýta grunnvatn úr vatnsbólinu Laxnesdýjum í Mosfellsdal án samþykkis sameigenda sinna að jörðinni Laxnesi I. Vatnið er nýtt í þágu vatnsveitu sveitarfélagsins.
Þrátt fyrir þá niðurstöðu vísaði Hæstiréttur frá héraðsdómi kröfu Þórarins Jónassonar, eins eigenda jarðarinnar, um viðurkenningu á bótaskyldu sveitarfélagsins vegna vatnstökunnar. Var krafan talin vanreifuð.
Þá var Mosfellsbær sýknaður af þeim hluta kröfu Þórarins sem laut að takmörkunum á afnotum jarðarinnar vegna vatnsverndarkvaða. Mögulegar bótakröfur vegna þeirra voru taldar fyrndar.
Hæstiréttur bendir hins vegar á í dómi sínum að Þórarinn hefði getað gert fjárkröfu á hendur sveitarfélaginu á grundvelli eignarhluta síns í jörðinni og hlutdeildar sinnar í verðmæti grunnvatnsins sem sveitarfélagið hefur nýtt.
Vatnstaka í um sex áratugi
Jörðin Laxnes I er 159,6 hektarar að stærð og er í eigu sjö aðila. Mosfellsbær á 25% hlut í jörðinni en Þórarinn 5,95%.
Borað var eftir neysluvatni í Laxnesdýjum um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar og hefur vatni verið dælt þar úr jörðu allar götur síðan.
Mosfellsbær sækir þar neysluvatn sem veitt er um stofnlagnir til þéttbýliskjarna sveitarfélagsins. Samkvæmt framburði sviðsstjóra umhverfissviðs Mosfellsbæjar fyrir héraðsdómi anna vatnsból í Mosfellsdal á bilinu 10 til 20% af neysluvatnsþörf sveitarfélagsins.
Mosfellsbær hefur ekki önnur afnot af jörðinni en vatnstökuna. Þórarinn flutti að Laxnesi árið 1968 og hóf þar rekstur hestaleigu sem enn er starfrækt.
Kröfðust greiðslu fyrir vatnið
Þórarinn eignaðist hlut sinn í jörðinni með afsali frá systur sinni árið 1999. Þá stóð til að skipta jörðinni á milli eigenda en af þeim skiptum hefur enn ekki orðið, 27 árum síðar.
Á árunum 2010 og 2011 áttu sér stað bréfaskipti milli Þórarins og Mosfellsbæjar vegna kröfu hans um greiðslu fyrir nýtingu grunnvatnsins. Hann hafði uppi sambærilega kröfu árið 2019. Aðrir sameigendur jarðarinnar höfðu einnig gert kröfur á hendur sveitarfélaginu af sama tilefni árin 2015 og 2018.
Sumarið 2020 var ráðist í viðgerðir á vatnslögn úr Laxnesdýjum. Þórarinn krafðist þess að framkvæmdirnar yrðu stöðvaðar og að leyst yrði úr ágreiningi um heimild sveitarfélagsins til vatnstökunnar. Þá krafðist hann sanngjarns endurgjalds fyrir vatnstöku undanfarinna ára.
Sýslumaður hafnaði beiðni hans um lögbann við framkvæmdunum í júlí sama ár. Þórarinn höfðaði mál á hendur Mosfellsbæ í desember 2020.
Þórarinn byggði mál sitt á því að Mosfellsbær hefði með ólögmætum hætti skert stjórnarskrárvarinn eignarrétt hans með því að nýta grunnvatn jarðarinnar í eigin þágu án þess að greiða fyrir það. mbl.is/Árni Sæberg
Taldi sveitarfélagið hafa skert eignarrétt sinn
Þórarinn byggði mál sitt á því að Mosfellsbær hefði með ólögmætum hætti skert stjórnarskrárvarinn eignarrétt hans með því að nýta grunnvatn jarðarinnar í eigin þágu án þess að greiða fyrir það.
Jafnframt taldi hann að vatnstakan og þær vatnsverndarkvaðir sem henni fylgdu hefðu í för með sér verulegar og íþyngjandi takmarkanir á nýtingu jarðarinnar.
Mosfellsbær byggði meðal annars á því að nýting jarðarinnar hefði verið í föstum skorðum um áratugaskeið. Sveitarfélagið hefði nýtt vatnsbólið en Þórarinn haft beitarafnot af jörðinni vegna hestaleigunnar.
Taldi sveitarfélagið að vatnstakan væri öðrum sameigendum bagalaus og að Þórarinn hefði ekki orðið fyrir tjóni af hennar völdum.
Landsréttur byggði á röngum lögum
Bæði héraðsdómur og Landsréttur höfðu sýknað Mosfellsbæ af kröfu Þórarins.
Landsréttur taldi að samkvæmt vatnalögum ætti Þórarinn ekki rétt á endurgjaldi fyrir nýtingu grunnvatnsins heldur einungis bótum ef vatnstakan ylli honum tjóni. Ekki var talið að hann hefði sýnt fram á slíkt tjón.
Hæstiréttur veitti áfrýjunarleyfi í mars á þeim grundvelli að úrslit málsins kynnu að hafa verulegt almennt gildi, meðal annars varðandi skilin á milli vatnalaga og laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram að Landsréttur hafi ranglega lagt ákvæði vatnalaga til grundvallar úrlausn málsins.
Grundvallarmunur væri á þeim reglum sem giltu um grunnvatn annars vegar og yfirborðsvatn hins vegar. Landeigendur færu með beinan eignarrétt að grunnvatni samkvæmt lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu frá árinu 1998 en nytu einungis tiltekins umráða- og hagnýtingarréttar yfir yfirborðsvatni samkvæmt vatnalögum.
Hæstiréttur hafnaði jafnframt þeirri málsástæðu Mosfellsbæjar að eignarréttur Þórarins væri bundinn við rétt hans til að fá tíu hektara landspildu skipta út úr jörðinni.
Jörðin væri enn óskipt og fylgdi 5,95% eignarhluta Þórarins í henni samsvarandi hlutdeild í grunnvatninu.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram að Landsréttur hafi ranglega lagt ákvæði vatnalaga til grundvallar úrlausn málsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Samþykki sameigenda að jafnaði nauðsynlegt
Í dóminum er fjallað ítarlega um þær reglur sem gilda um nýtingu eigna í sérstakri sameign.
Meginreglan sé sú að samþykki að minnsta kosti meirihluta sameigenda þurfi að liggja fyrir við nýtingu og ráðstöfun sameignar.
Frá þeirri reglu séu þó undantekningar. Einstökum sameigendum sé meðal annars heimil sú nýting sem gengið hafi verið út frá við stofnun sameignarinnar eða sé öðrum sameigendum bagalaus.
Mosfellsbær byggði á því að vatnstakan félli undir báðar þessar undantekningar en Hæstiréttur féllst ekki á það.
Sveitarfélagið eignaðist upphaflega hlut í Laxnesjörðinni árið 1959. Að mati Hæstaréttar var ekkert í gögnum málsins sem benti til þess að það hefði verið gert í þeim tilgangi að afla neysluvatns fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Þá lágu engir samningar fyrir í málinu við eigendur Laxness I um upphaf vatnstökunnar á sjöunda áratug síðustu aldar.
Tæplega milljón rúmmetra á fjórum árum
Takmarkaðar upplýsingar lágu fyrir í málinu um umfang vatnstöku Mosfellsbæjar úr Laxnesdýjum.
Fyrir liggur þó að á árunum 2007 til 2010 dældi sveitarfélagið samtals um 516 þúsund rúmmetrum af vatni úr jörðu. Á árunum 2015 til 2018 nam magnið tæplega 945 þúsund rúmmetrum.
Við mat á því hvort vatnstakan væri öðrum sameigendum bagalaus leit Hæstiréttur meðal annars til umfangs hennar og framburðar sviðsstjóra umhverfissviðs Mosfellsbæjar um að ekki yrði tekið mikið meira grunnvatn úr Laxnesdýjum en þegar væri gert.
Taldi rétturinn því ljóst að nýting sveitarfélagsins skerti jafnan rétt annarra eigenda jarðarinnar til að nýta auðlindina með sambærilegum hætti.
Hæstiréttur taldi heldur ekki unnt að bera saman vatnsnýtingu Mosfellsbæjar og önnur afnot Þórarins af jörðinni og líta svo á að afnot þeirra vegi hvort annað upp.
Frá Mosfellsbæ. Mosfellsbær byggði meðal annars á því að nýting jarðarinnar hefði verið í föstum skorðum um áratugaskeið. Sveitarfélagið hefði nýtt vatnsbólið en Þórarinn haft beitarafnot af jörðinni vegna hestaleigunnar. mbl.is/Sigurður Bogi
Glata ekki eignarréttindum með aðgerðaleysi
Hæstiréttur tók jafnframt fram að þótt vatnstakan hefði um árabil farið fram án athugasemda glataði einstakur eigandi ekki eignarréttindum sínum með aðgerðaleysi gagnvart nýtingu sameigenda sinna nema á grundvelli reglna um hefð.
Mosfellsbær hafði ekki byggt á því að sveitarfélagið hefði öðlast rétt til einhliða vatnstöku á grundvelli laga um hefð.
Þá lágu fyrir gögn um að Þórarinn og síðar fleiri eigendur jarðarinnar hefðu allt frá árinu 2010 haft uppi kröfur um greiðslu fyrir vatnið.
Niðurstaða Hæstaréttar var sú að vatnstakan væri ekki öðrum sameigendum bagalaus og að Mosfellsbæ hefði því ekki verið heimil hún án samþykkis sameigenda sinna, annaðhvort meirihluta þeirra eða allra.
Bendir á aðra leið til að krefjast greiðslu
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu taldi Hæstiréttur grundvöll kröfugerðar Þórarins ekki nægilega skýran.
Óljóst væri á hvaða grundvelli skaðabótakrafa hans vegna vatnstökunnar væri reist. Þá væri ætlað tjón hans vanreifað og jafnframt óljóst hver réttaráhrif dóms um kröfu hans yrðu.
Hæstiréttur bendir hins vegar á að Þórarinn hefði getað gert fjárkröfu á grundvelli 5,95% eignarhluta síns í jörðinni og upplýsinga um það vatnsmagn sem Mosfellsbær hefði aflað í þágu vatnsveitu sinnar. Sveitarfélaginu bæri samkvæmt lögum að veita honum þær upplýsingar.
Slíka kröfu hefði mátt reisa á reglum eignarréttar um hlutdeild sameiganda í verðmætum sem verða til við nýtingu fasteignar í sameign. Greiðslur á þeim grundvelli væru óháðar hefðbundinni sönnun á tjóni.
Þá hefði Þórarinn einnig getað krafist viðurkenningar á 5,95% hlutdeild í ætluðu verðmæti þess grunnvatns sem Mosfellsbær dælir úr jörðinni á hverjum tíma.
Hæstiréttur gerir að lokum sérstakar athugasemdir við þann langa tíma sem rekstur málsins fyrir héraðsdómi tók. Ljósmynd/Colourbox
Bótakröfur vegna vatnsverndar fyrndar
Hvað varðar kröfu Þórarins vegna takmarkana á afnotum jarðarinnar leit Hæstiréttur til þess að vatnsverndarkvaðir hefðu um áratugaskeið gilt um Laxnesdý.
Skilgreining vatnsverndarsvæða þar hefði verið óbreytt að minnsta kosti frá árinu 1997 og þegar á þeim tíma hefði verið komin girðing umhverfis nýtingarsvæði borholunnar.
Mögulegar bótakröfur vegna þessara takmarkana voru því taldar fyrndar og Mosfellsbær sýknaður af þeim hluta kröfu Þórarins.
Málskostnaður var felldur niður á öllum dómstigum.
Segir drátt á málinu aðfinnsluverðan
Hæstiréttur gerir að lokum sérstakar athugasemdir við þann langa tíma sem rekstur málsins fyrir héraðsdómi tók.
Frá því að málsaðilar lýstu gagnaöflun lokið og þar til aðalmeðferð fór fram liðu rúmlega þrjú ár og fjórir mánuðir. Aðalmeðferð málsins var á þeim tíma frestað sex sinnum vegna sáttaumleitana en hún fór loks fram í september 2024.
Taldi Hæstiréttur að rekstur málsins hefði því farið verulega í bága við ákvæði laga um meðferð einkamála og væri það aðfinnsluvert.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



