Tugir létust þegar olíutrukkur lenti á hliðinni

Á myndskeiðunum frá Egyptalandi mátti sjá mikinn eld.

Á myndskeiðunum frá Egyptalandi mátti sjá mikinn eld. AFP

Í það minnsta 30 manns létu lífið þegar olíutrukkur lenti á hliðinni í Kaíró, höfuðborg Egyptalands.

Heilbrigðisráðuneytið þar í landi greinir frá.

Slysið átti sér stað í umferðarteppu á hraðbraut. Myndskeið sem AFP-fréttaveitan hefur sannreynt sýna heilmikinn eld á slysstaðnum og stórt olíuský sem steig af slysstað. 

Egypskir miðlar segja að slysið hafi orðið þegar bíllinn reyndi að snúa við og valt á hliðina þegar hann breytti um stefnu. 

Á myndskeiðum mátti sjá að fjöldi bíla hafði orðið illa úti í slysinu. Slökkviliðsmenn sáust á vettvangi að störfum.

Ýta virðist jafnframt hafa verið komin á staðinn til að ýta af hraðbrautinni bílabrakinu.

Olíubíllinn sem brann.

Olíubíllinn sem brann. AFP/Mahmoud el-Khawas

Fjöldi bíla urðu eldi að bráð.

Fjöldi bíla urðu eldi að bráð. AFP/Mahmoud el-Khawas

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab